Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Lauren Doughtie (11. grein af 27)
Í dag verður 1 af 7 stúlkum kynnt sem varð í 17. sæti á lokaúrtökumóti LPGA sem fram fór á Daytona Beach í Flórída, dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Stúlkurnar 7 fóru í bráðabana um lausu sætin 4 (þ.e. 17., 18., 19. og 20. sætið) en aðeins efstu 20 stúlkurnar á lokaúrtökumótinu hlutu full keppnisréttindi á LPGA fyrir keppnistímabilið 2013. Þær 3 óheppnu sem töpuðu í bráðabananum, Breanna Elliott, Kelly Jacques og Jiayn Li hafa þegar verið kynntar, sem og þrjár af þeim heppnu, Irene Cho, Taylore Karle og Nicole, sem hlutu full keppnisréttindi. Í dag verður sú síðasta kynnt sem varð í 17. sæti, bandaríska stúlkan Lauren Doughtie.
Á morgun verður hafist handa við að kynna stúlkurnar 6, sem deildu 11. sætinu og flugu inn á LPGA: Marinu Stuetz, Caroline Masson, Austin Ernst, Brooke Pancake, Kim Welch og Kaylu Mortellaro.
Lauren Doughtie fæddist í dag, 16. desember árið 1986 í Williamston, Norður-Karólínu og er því 26 ára. Hún er dóttir Mike og Susan Doughtie og á eina eldri systur, Ashley, Lauren útskrifaðist frá NC State með gráðu í viðskiptafræði árið 2009 og spilaði öll 4 ár sín með Wolfpack háskólaliðinu. Sjá má afrek Lauren í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Strax að lokinni útskrift árið 2009 komst Lauren á Futures (nú Symetra) Tour þar sem hún hefir spilað s.l. 3 ár. Sem áhugamaður vann hún m.a. Virginia Women’s State Amateur Championship, árið 2008.
Næsta ár mun Lauren í fyrsta sinn keppa á LPGA þar sem hún var ein af þeim 4 heppnu sem kræktu sér í síðustu sætin í gegnum lokaúrtökumót Q-school LPGA!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024