Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Björn Åkesson (14. grein af 28)
Í dag verður annar af tveimur kylfingum kynntir sem deildu með sér 14. sætinu á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar sem fram fór á PGA Catalunya golfstaðnum í Girona, Spáni, dagana 24.-29. nóvember s.l.
Í dag verður byrjað á Svíanum Björn Åkesson.
Björn Åkesson fæddist 4. janúar 1989 í Malmö, Svíþjóð og er því 23 ára. Hann spilaði íshokkí, fótbolta og golf sem krakki en einbeitti sér að golfinu vegna hæðar sinnar. Gefum Birni orðið: „Þegar ég var um 14 ára gamall uxu allir strákarnir í kringum mig en ég var eitthvað seinþroska, Ég fór úr því að vera virkilega góður íshokkímaður í miðlungs. Þannig að það var meira gaman í golfi vegna þess að ég var góður og stærðin skipti engu máli.“
Björn byrjaði að spila golf þegar pabbi hans fór með hann og bræðurnar á par-3 golfvöll nálægt heimili þeirra og var farinn að spila á fullvaxta golfvelli við 9 ára aldurinn. Hann segist hafa varið hverju sumri frá því snemma á morgnanna til seint á kvöldin síðan þá á golfvellinum.
Björn hefir verið í sænska landsliðinu frá 15 ára aldri og komst áfram í gegnum Nordea Tour 2010, þar sem hann varð 2. á peningalistanum og var síðan í 2 keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni.
Heima í Svíþjóð er Björn félagi í Bärseback golfklúbbnum og viðurkennir að sér finnist enn gaman að íshokkí en spili ekki svo mikið vegna þess að það sé svo auðvelt að meiðast. Björn var í bandaríska háskólagolfinu; lék með Arizona State öll 4 ár sín í námi. Hann gerðist atvinnumaður 2009, tvítugur að aldri. Hann spilar sem stendur á Alfred Dunhill Championship í Suður-Afríku og gengur bara vel er á samtals 5 undir pari, fyrir lokahringinn. Björn er sem stendur nr. 422 á heimslistanum.
Meðal áhugamála Björns eru íþróttir almennt, sérstaklega skíði fyrir utan golfið sem og að vera með fjölskyldu og vinum.
Björn er búinn að reyna að komast á Evrópumótaröðina allt frá því hann gerðist atvinnumaður 2009, en hann tók þátt í Q-school 2009, 2010 og 2011 en það er ekki fyrr en núna sem allt smellur, eftir mikla reynslu á Nordea og Áskorendamótaröðinni!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024