The five top competitiors at the US Kids Holiday Classic. Photo: In possession of Steingrímur Ingason (Fannar Ingi´s dad).
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 23. 2012 | 07:00

Fannar Ingi sigraði á US Kids – Holiday Classic mótinu í Flórída!!!

Fannar Ingi Steingrímsson, 14 ára úr GHG sigraði glæsilega í US Kids Holiday Classic mótinu á Palmer golfvellinum í Palm Beach Gardens í Flórída, í gærkvöldi.

Spilaðir voru 2 hringir og lék Fannar Ingi á samtals 157 höggum (80 77)

Fannar Ingi átti 3 högg á þann sem næstur kom, „heimamanninn“ Doug Smith frá Winter Park í Flórída. Í 3. sæti, 6 höggum á eftir Fannari Inga var Guillermo Casares, frá Mexíkó; en væntanlega eigum við eftir að sjá alla 3 ofarlega á skortöflum einhverrar stóru mótaraðanna í framtíðinni!

Þess mætti geta að Fannar Ingi er klúbbmeistari GHG 2012 og var nú nýverið valinn kylfingur ársins á aðalfundi GHG. Fannar Ingi er jafnframt í afrekshópi GSÍ 18 ára og yngri völdum af landsliðsþjálfara. Fannar Ingi hefir staðið sig frábærlega bæði á Unglingamótaröð Arion banka þar sem hann varð m.a. í 2. sæti bæði á Íslandsmótunum í holukeppni og höggleik í strákaflokki (14 ára og yngri) og eins spilaði hann á síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar – Símamótinu í Grafarholti (yngstur þátttakenda; aðeins 13 ára) en náði þeim stórglæsilega árangri að verða í 7.-8. sæti!

Ennfremur er þetta ekki í fyrsta skipti sem Fannar Ingi er á verðlaunapalli erlendis í ár, því í sumar tók hann m.a. þátt í Finnish International Junior Championship í Vierumäki í Finnlandi og náði þeim glæsilega árangri að komast á verðlaunapall, lenti í 3. sæti af 54 keppendum í strákaflokki 14 ára og yngri.

Til þess að sjá nýlegt viðtal sem Golf1 átti við sigurvegara US Kids Holiday Classic mótsins, Fannar Inga Steingrímsson SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá úrslitin á US Kids Holiday Classic mótinu 2012 SMELLIÐ HÉR: