Dustin Johnson, sigurvegari 1. mótsins á PGA Tour 2013
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 9. 2013 | 10:30

PGA: Dustin Johnson sigraði á fyrsta móti ársins 2013 á Hawaii

Það er Dustin Johnson, sem er sigurvegari Tournament of Champions 2013, þessu niðurrignda og vindfeykta fyrsta móti PGA mótaraðarinnar á árinu, en 3 hringir voru leiknir 7. og 8. janúar 2013, alls 54 holur, en mótið var stytt vegna veðurhamsins.

Það er Dustin Johnson sem hampar þessum bikar á fyrsta móti ársins á PGA Tour 2013!

Það er Dustin Johnson sem hampar þessum bikar á fyrsta móti ársins á PGA Tour 2013!

Johnson var með 3 högga forystu fyrir lokahringinn, sem hann lét aldrei af hendi.  Hann spilaði samtals á 16 undir pari, 203 höggum (69 66 68).

Spurning hvað hafi orðið til þess að hann sigraði? Var það að hann var búinn að dansa svo mikið Gangnam Style með Jesper Parnevik SJÁ HÉR:  eða er það nýja ástin í lífi hans, Paulina Gretzky, sem hefir þessi jákvæðu áhrif?

Í 2. sæti varð Steve Stricker á samtals 12 undir pari og í  3. sæti varð Brandt Snedeker á samtals 10 undir pari.

Bubba Watson  og Keegan Bradley deildu 4. sætinu  á samtals 9 undir pari, hvor.

Til þess að sjá úrslitin á Tournament of Champions SMELLIÐ HÉR: