Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2014 | 12:30

Hver er kylfingurinn: Russell Henley?

Russell Henley sigraði fyrsta mót sitt á PGA Tour í 14. janúar 2013 þ.e. fyrir ári síðan… en það var í fyrsta sinn sem hann spilaði  á PGA Tour sem fullgildur félagi, því hann hlaut kortið sitt eftir gott gengi á Web.com mótaröðinni – sem er svona einskonar 2. deild golfsins vestra. Í gær, 2. mars 2014 bætti hann við 2. sigri sínum á PGA Tour og það ekki á móti af lakari sortinni, heldur sjálfu Honda Classic eftir bráðabana við þá Rory McIlroy, Ryan Palmer og nafna sinn Russell Knox.

Russell Henley hefir verið rísandi golfstjarna vestur í Bandaríkjunum og sigur hans í gær undirstrikar það enn betur.

Russell Henley eftir sigurinn á Sony Open 2013

Russell Henley eftir sigurinn á Sony Open 2013

Henley fær vegna sigursins að spila á the Masters núna í vor. Hann er fyrsti kylfingurinn á PGA Tour til þess að sigra í fyrsta mótinu sem hann tekur þátt í á PGA mótaröðinni, sem fullgildur félagi í lengri tíma og það gerði hann með stæl því hann bætti gamla heildarskorsmetið á Sony Open um 4 högg 2013! Auk þess var þetta 2. lægsta heildarskor í allri sögu PGA Tour.  Aðeins Tommy Armour var með 2 höggum lægra heildarskor á Valero Texas Open, 2003.

Hver er þessi 24 ára ljóshærði golfengill?

Russell Henley fæddist 12. apríl 1989 í Macon, Georgíu og er því 24 ára . Hann er sonur Chapin og Sally Henley og á 1 bróður.  Henley býr á St. Simmons eyju í Georgía. Russel spilaði golf með University of Georgia í 4 ár og hlaut m.a. hin virtu Haskins Award fyrir að vera besti kylfingurinn í bandaríska háskólagolfinu.   Til þess að sjá golfafrek Russell Henley í háskóla SMELLIÐ HÉR

Henley spilaði m.a. í Opna bandaríska risamótinu 2010 og var (ásamt Scott Langley) á lægsta skori áhugamanna. Hann spilaði á 2 mótum á Nationwide Tour 2010: the Nationwide Children’s Hospital Invitational og the Stadion Athens Classic í UGA.

Árið þar á eftir sigraði hann í Stadion Classic at UGA á the Nationwide Tour og var það fyrsti sigur hans af 3 á þeirri mótaröð (sem í fyrra hlaut nýtt nafn Web.com Tour).

Russell útskrifaðist 2011 frá University of Georgia með gráðu í hagfræði og strax það ár gerðist hann atvinnumaður í golfi. Keppnistímabilið 2011-2012 spilaði hann á Web.com Tour þar sem hann sigraði tvívegis. Hann hóf keppnisferil sinn á Soboba Golf Classic í  september 2011. Ári síðar í september 2012, vann Henley á Chiquita Classic, þar sem hann sigraði Patrick Cantlay og Morgan Hoffmann í umspili. Eins vann hann í mánuðnum þar á eftir (21. október 2012) á Winn-Dixie Jacksonville Open og aftur eftir umspil, í þetta sinn við BJ Staten.

Á árinu 2013 spilaði Henley í 24 mótum á PGA Tour og komst 17 sinnum í gegnum niðurskurð og vann sér inn rúmar $ 2 milljónir í verðlaunafé.  Með sigrinum á Honda Classic í gær er hann búinn að spila í 10 mótum það sem af er árs 2013-2014 keppnistímabilsins og komast 6 sinnum í gegnum niðurskurð. Fyrir sigurinn í gær fékk hann líka litla $ 1,2 milljónir!  Alls hefir hann á þessum tímapunkti (snemma í mars 2014 leikið í 36 mótum á PGA Tour og komist 25 sinnum í gegnum niðurskurð og þar af sigrað 2 sinnum.  Ekki slæm tölfræði það.

Já, Russell Henley er svo sannarlega að festa sig sem einn af bestu leikmönnum á bandarísku PGA mótaröðinni!!!

Russell Henley

Russell Henley

Svona í lokin og kannski á meira persónulegum nótum er rétt að geta nokkurra fróðleiksmola um þessa upprennandi stjörnu, Russell Henley:

Henley segir að sér finnist skemmtilegast í golfinu að setja niður löng pútt og hann hefir greinilega verið að skemmta sér í mótinu í gær sbr. þetta glæsilega 15 metra fuglapútt SMELLIÐ HÉR: 

Henley finnst skemmtilegast utan golfsins að fara og hlusta á tónlist live.

Hann segir að Augusta National og Pebble Beach séu uppáhaldsvellir sínir, sem hann hafi spilað. Honum langar mikið til að spila á Cypress Point.

Uppáhaldslið Henley eru Georgia Bulldogs (íþróttalið háskóla Henley, University of Georgia og  Atlanta Braves (hafnarboltalið).

Uppáhaldssjónvarpsþáttur hans er  „Family Guy,“ og Kid Rock er uppáhaldstónlistarmaður hans. Hér má sjá myndskeið með Kid Rock SMELLIÐ HÉR: 

Henley finnst skemmtilegasta borgin vera Monterey í Kaliforníu og Destin í Flórída er uppáhaldsfrístaður hans.

Uppáhaldsfrístaður Henley er Destin í Flórída .... og það er alveg hægt að taka undir með honum þar.... staðurinn er í einu orði FRÁBÆR!!!

Uppáhaldsfrístaður Henley er Destin í Flórída …. og það er alveg hægt að taka undir með honum þar…. staðurinn er í einu orði FRÁBÆR!!!

Henley er eins og allir góðir golfarar hjátrúarfullir og meðal hjátrúar hans er að tala aldrei um skor á hring.

Í draumahollinu hans myndu vera Kid Rock, Dave Grohl og  Andres Gonzales.

Meðal þess sem Henley langar til þess að gera í framtíðinni er fallhlífarstökk, að koma til Ítalíu og að sigra á Masters. Skyldi honum takast þetta þrennt á árinu?

Henley hefir starfað sem sjálfboðaliði fyrir Macon Volunteer Clinic, sem veitir þurfandi í heimabæ Henley, Macon læknisaðstoð.

Svona í lokinn þá er vert að geta þess að Russel Henley á kærestu, Molly.