Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2013 | 20:45

Viðtalið: Alastair Kent, GR

Viðtalið í kvöld er við einn félaga í Elítunni – 20 manna lokaðs félagsskapar lágforgjafarkylfinga í Golfklúbbi Reykjavíkur. Markmið Elítunnar er að hittast vikulega yfir sumarmánuðina og spila golf sér og meðspilurunum sínum til ánægju og yndisauka.  Hér fer viðtalið:

Fullt nafn: Alastair Kent.

Klúbbur: GR.

Hvar og hvenær fæddistu?  Ég fæddist í Saddleworth, Englandi þann 6. febrúar 1970. Sjá má heimasíðu golfklúbbsins í Saddleworth með því að SMELLA HÉR: 

Hvar ertu alinn upp?  Í Saddleworth.

Alastair Kent í Dubai 2012. Mynd: Í eigu Alastairs

Alastair Kent í Dubai 2012. Mynd: Í eigu Alastairs

Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Pabbi spilar golf og tvíburadætur mínar tvær 10 ára eru að læra. 

Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég byrjaði 13 ára í golfi og spilaði þar til ég varð 18 ára. Síðan tók ég mér 10 ára hlé áður en ég byrjaði í golfinu að nýju.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Pabbi spilaði golf.

Hvað starfar þú?  Ég er svæðisbundinn sölustjóri hjá Marel.

Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli?   Skógarvelli – ég sakna að hafa þá ekki á Íslandi.

Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur?  Höggleikur.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi?   Grafarholtið.

Frá Grafarholtinu - uppáhaldsgolfvelli Alastairs á Íslandi. Mynd: grgolf.is

Frá Grafarholtinu – uppáhaldsgolfvelli Alastairs á Íslandi. Mynd: grgolf.is

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? St Andrews.

St. Andrews er uppáhaldsgolfvöllur Alastairs erlendis.

St. Andrews er uppáhaldsgolfvöllur Alastairs erlendis.

Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju?  Forest Of Arden í Englandi. Þær eru ótrúlegar seinni 9 holurnar á vellinum og þar eru dádýr. Síðan er Bangalore golfklúbburinn á Indlandi í uppáhaldi, en þar var ég með kylfusvein sem var með 3,8 í forgjöf.

Alastair á Bangalore golfvellinum á Indlandi. Mynd: Í eigu Alastair

Alastair á Bangalore golfvellinum á Indlandi. Mynd: Í eigu Alastair

 Hvað ertu með í forgjöf?  9.1

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því?   76 högg í Grafarholti. Þar var ég með  13 pör og 5 skolla.

Hvert er lengsta drævið þitt?   365 yardar (334 metrar) á Forest of Arden í Englandi, í september árið 2011 Haukur Gislasson var vitni að þessu!!!

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu?   Að spila seinni 9 á 3 undir pari eftir að hafa spilað fyrri 9 á 10 yfir pari í  Saddleworth golfklúbbnum.

Golf spilað í miðnætursólinni á Íslandi að sumarlagi. Mynd: Í eigu Alastairs

Golf spilað í miðnætursólinni á Íslandi að sumarlagi. Mynd: Í eigu Alastairs

Hefir þú farið holu í höggi?  Já, á par-3 braut árið 1991 í Englandi. Ég notaði 9-járn og boltinn var inni allan tímann!

Holan þar sem Alastair sló draumahöggið. Mynd: Í eigu Alastair

Brautin, þar sem Alastair sló draumahöggið. Mynd: Í eigu Alastair

Hvaða nesti ertu með í pokanum? Vatn og samloku með roast beef.

Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum?  Já, ég hleyp, hjóla, hef verið í fótbolta, krikket, rugby, badminton, skvassi …. o.fl.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbók?   Uppáhaldsmaturinn minn er íslenska lambið; uppáhaldsdrykkurinn er  Makers Mark Bourbon, uppáhaldstónlistin er með Oasis; uppáhaldskvikmyndir er The Godfather og uppáhaldbókin er Wonderland Avenue.

Alastair á Montgomerie golfklúbbnum í Dubaí. Mynd: Í eigu Alastairs

Alastair á Montgomerie golfklúbbnum í Dubaí. Mynd: Í eigu Alastairs

Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? KK.: Seve Ballesteros. Kvk.: Ragnhildur Sigurðardóttir (fæ kannski afslátt af golfkennslu hjá henni út á þetta?).

Hvert er draumahollið?  Ég og….. Seve,  Jack Nicklaus, Tiger Woods og Lee Westwood (einhverjir 3 af þessum 4).

Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín?   Í pokanum er Mizuno MP63. Uppáhaldskylfan er 6 járnið, það er „Prozac” kylfan mín.

Hefir þú verið hjá golfkennara – ef svo er, hverjum?  Já, ég hef verið hjá Ragnhildi  Sigurðardóttur; hún er gæðakennari.

Slegið úr vatni sumarið 2012. Mynd: Í eigu Alastairs

Slegið úr vatni sumarið 2012. Mynd: Í eigu Alastairs

Ertu hjátrúarfullur?  Nei.

Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu?  Í golfinu: að njóta hvers hringjar, góðs eða slæms. Í lífinu að vera þakklátur, hafa húmor, halda heilsu og safna töfrastundum á hverjum degi.

Hvað finnst þér best við golfið?   Golf er besti „equalizer-inn.“

Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)?  Allt of há!

Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum?     Ekki veðja um peninga þegar þið spilið við Helga Dan Steinsson og munið alltaf að jafnvel þegar skorið er yfir 100 að einbeita sér að næsta höggi.