Ian Poulter heimsmeistari í holukeppni í fræga bleika dressinu 🙂
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2013 | 09:00

Verður Ian Poulter heimsmeistari í holukeppni 2013?

Nú er ljóst hverjir þeir 4 eru sem komnir eru áfram í fjórðungsúrslit á heimsmótinu í holukeppni….

og þá fara golffréttamenn að spá og spekúlera í því hver komi til með að standa uppi sem heimsmeistari.

Sean Martin hjá Golfweek spáir því að Hunter Mahan sigri Ian Poulter 1&0 og Matt Kucher verði síðan heimsmeistari eftir sigur á Hunter Mahan og sigur Kucher þar áður á Jason Day 3&2. Úrslit Kucher-Mahan -> Kucher sigrar. Sjá rökstuðning fyrir því með því að SMELLA HÉR: 

Ofangreind spá er dæmigerð fyrir bandaríska golffréttamiðla að spá því að báðir bandarísku kylfingarnir standi eftir í úrslitum!

En líkurnar á hvernig þetta fer eru fleiri:

Tilgátu Sean Martin mætti snúa við Ian Poulter sigri Hunter Mahan 1&0 og Matt Kucher verði síðan heimsmeistari eftir sigur á Ian Poulter í úrslitum og þar áður á Jason Day 3&2. Úrslit Kucher-Poulter -> Kucher sigrar.

Eins mætti halda í spá Martin að því leyti að Mahan hafi betur gegn Poulter 1&0 en Day rétt hafi Kucher 1&0 og vinni síðan Mahan 1&0 í úrslitum. Jason Day verði heimsmeistari. Úrslit Day-Mahan -> Day sigrar.

Þessu mætti snúa við þannig að Poulter hafi betur gegn Mahan 3&2. Og Day hafi síðan betur gegn Poulter eftir að hafa rétt marið Matt Kucher 1&0. Jason Day verði heimsmeistari. Úrslit Day-Poulter -> Day sigrar.

Þessu mætti síðan enn snúa svona Mahan sigrar Poulter 1&0. Jason Day hefir betur gegn Matt Kucher 1&0.  Mahan ber síðan sigurorð af Day 1&0. Allir leikirnir fara í bráðabana Mahan verður heimsmeistari. Úrslit Mahan-Day -> Mahan sigrar.

Snúum þessu enn við: Mahan sigrar Poulter 1&0. Matt Kucher hefir betur gegn Jason Day 3&2 eins og Martin spáir. En tvistið við spá Sean Martin er að Mahan sigrar Kuch 1&0 með minnsta mun eftir nokkrar bráðabanaholur. Hunter Mahan verður heimsmeistari 2. árið í röð og tekst að endurtaka afrek Tiger 2003-2004 þegar hann varð heimsmeistari 2 ár í röð. Úrslit Mahan-Kucher -> Mahan sigrar.

Enn annar möguleiki er svona Ian Poulter sigrar Hunter Mahan 1&0 og Matt Kucher hefir betur gegn Jason Day  2&1.  Poulter hefir síðan betur gegn Kucher 1&0. Ian Poulter verður heimsmeistari. Úrslit Poulter-Kucher -> Poulter sigrar.

Lokamöguleikinn er svona Ian Poulter sigrar Hunter Mahan 3&2 og Jason Day rétt mer Matt Kucher 1&0. Poulter hefir siðan betur gegn Day 1&0. Ian Poulter verður heimsmeistari. Úrslit Poulter-Day-> Poulter sigrar.

Já möguleikarnir á úrslitum eru þessir 8 ofangreindu og við á Golf 1 höllumst að tveimur síðargreindu – Ian Poulter verði heimsmeistari í 2. sinn, en kannski er það bara óskhyggja, svona af því að hann er eini Evrópubúinn í úrslitum …..svona  til mótvægis við allar þessar bandarísku spár, þó vissulega væri gaman  að sjá Mahan verða heimsmeistara tvö ár í röð, Kuch sé í tveimur orðum frábær holukeppnismaður og Jason Day…. maður skyldi aldrei afskrifa þennan ástralska snilling.