Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 22 – Willie Fernie

William „Willie“ Fernie (1857–1924) var skoskur kylfingur frá vöggu golfsins, St. Andrews. Hann sigraði  Opna breska, 1883 á Musselburgh Links. Mótið var 4 hringja á 9 holu vellinum, haldið á föstudegi í nóvember. Fernie deildi sætinu að loknum hefðbundnum  hringjafjölda með þeim sem átti titil að verja, Bob Ferguson, en báðir voru á 158 höggum. Næsta dag vann Fernie bráðabanann milli þeirra Ferguson, með einu höggi.

Willie Fernie

Fernie var í 2. sæti á Opna breska árin 1882, 1884, 1890 og 1891. Þegar George Strath fór frá Royal Troon árið 1887 varð Willie Ferni golfkennari þar og var þar næstu 37 ár. Willie Fernie vann sem golfvallarhönnuður og gerði á ferli sínum m.a. breytingar á Old Course á St. Andrews og Royal Troon og hannaði Ailsa völlinn í Turnberry og golfvellina í Isle of Arran.

Heimild: Wikipedia