Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2011 | 08:15

GS: Elísabet, GKG og Guðmundur Rúnar,GS, sigruðu á Vetrarmóti GS

Það var sannkölluð sumarblíða í gær í Leirunni þegar 95 manns, þar af 5 konur voru ræst út með shotgun fyrirkomulagi á slaginu 10:30.  Hólmsvöllur er í sérlega góðu ásigkomulagi miðað við árstíð og flatirnar fínar. Mótið var opið punktamót og verðlaun veitt fyrir besta skor og fyrstu 3 sætin í punktakeppni með forgjöf. Athyglivert er að af einungis 5 kvenkylfingum sem tóku þátt voru 2 sem voru meðal 3 efstu í punktakeppninni; Elísabet Björnsdóttir, GKG, sigraði mótið og Guðrún Kristín Bachman, GR,  varð í 3. sæti. Glæsilegur árangur hjá konunum!

Helstu úrslit í mótinu eru þessi:

Besta skor:

1. sæti Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, (Klúbbmeistari) GS (2011), 73 högg.

2. sæti Einar Long, GR, 74 högg.

3. sæti Rafn Stefán Rafnsson, GO, 75 högg.

 

Elísabet Böðvarsdóttir, GKG, sigraði punktakeppnina í gær (13. nóvember 2011) í Opnu Vetrarmóti GS

Punktakeppni með forgjöf: 

1. sæti Elísabet Böðvarsdóttir, GKG, 44 pkt.

2. sæti Sigurður Óli Sumarliðason, GOB, 41 pkt.

3. sæti Guðrún Kristín Bachman, GR, 40 pkt.

4. sæti Gunnlaugur Kristinn Unnarsson, GS, 39 pkt.

5. sæti Guðmundur Ágúst Guðmundsson, GK, 38 pkt.