Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2013 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2013: Charlotte Ellis – (35. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt kanadíska frægðarhallarkylfingnum Lori Kane, sem spilar á LET á undanþágu.

Auk þess hafa allar stúlkur verið kynntar, sem höfnuðu í sætum 10-30 í Lalla Aicha Tour School 2013. Tvær stúlkur  urðu í 9. sæti: Katie Burnett og Charlotte Ellis. Byrjað var að kynna Katie í gær og í dag er það Charlotte.

Fullt nafn: Charlotte Ellis

Ríkisfang: ensk. 

Charlotte Ellis

Charlotte Ellis

Fæðingardagur: 3. janúar 1986 (27 ára).

Fæðingarstaður: Oxford, Englandi.

Heimilisfang: Cheltenham, Gloucestershire.

Áhugamál: Bíóferðir, tennis, hokkí og að fara í gönguferðir með hundunum sínum.

Gerðist atvinnumaður: Í janúar 2012.

Hæð: 1,69 m

Háralitur: ljóshærð.

Augnlitur: brúnn.

Byrjaði í golfi: 14 ára.

Mestu áhrifavaldar í golfinu: Pabbinn, sem er tannlæknir, en Charlotte vinnur á stofunni hjá honum, þegar hún er ekki að keppa.

Charlotte er félagi í: Minchinhampton GC í Englandi.

Þjálfari: Kirsty Taylor, fyrrum atvinnumaður á LET

Hápunktar á áhugamannsferli:  enskur mid-amateur meistari árið 2006;  varð í 2. sæti á the English Open Strokeplay árin 2009 , 2010 og skoskur meistari í höggleik 2011. Hún komst á LET í fyrstu tilraun með því að ná 14. sætinu í lokaúrtökumóti meðan hún var enn áhugamaður með 3 í forgjöf.

Hápunktar á atvinnumannsferli: Í fyrra, árið 2012, á nýliðaári sínu spilaði Charlotte í 11 mótum og var besti árangurinn T-29 á Tenerife Open de España Femenino. Hún varð í 113. sæti á peningalistanum og varð að fara aftur í Q-school, þar sem hún fékk fullan keppnisrétt á LET.

Staðan í Lalla Aicha Tour School 2013: T-9 (5 sætum betra en í Q-school 2012!!!)