Ingvi Rúnar Einarsson, stofnandi GKH, 2. f.h. á myndinni, en hér er hann á Vormóti Hafnarfjarðar 2011. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Ingvi Rúnar og Azahara Muñoz – 19. nóvember 2011

Það eru spænski kylfingurinn Azahara Muñoz Guijarro og Ingvi Rúnar Einarsson, GK sem eru afmæliskylfingar dagsins, en þau eru bæði fædd fæddist 19. nóvember, Azahara 1987 í Málaga, á Spáni og er  því 24 ára í dag, en Ingvi Rúnar fæddist 50 árum áður, 1937 og er því 74 ára.

Ingvi Rúnar er félagi í Golfklúbbnum Keili og hefir mikinn áhuga á golfi; heldur m.a. úti hópsíðunni Kylfingar á Facebbook.

Azahara spilar bæði á Evróputúrnum og  LPGA (Ladies Professional Golf Association) og háði frumraun sína á Solheim Cup nú í ár í Killeen Castle, þegar lið Evrópu vann lið Bandaríkjanna.

Góðir kylfingar hér á ferð!

Azahara Muñoz

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is