Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2011 | 07:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Grand Open hjá GSE – 13. júní 2011

Glæsilegt Grand Open golfmót fór fram á Setbergsvelli í Hafnarfirði, 2. í Hvítasunnu, mánudaginn 13. júní í sumar. Alls voru 104 kylfingar skráðir í mótið og 98 luku keppni; 86 karlar og 12 konur. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og verðlaun veitt fyrir 5 efstu sætin og jafnframt 69. sætið. Eins voru veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar, en ekki hægt að taka verðlaun bæði fyrir besta skorið og verðlaun í punktakeppni. Veitt voru nándarverðlaun á öllum par-3 brautum og dregið úr fjölda skorkorta. Skorkortavinningar voru fjölmargir:

2 x steikarhlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski.
5 x gjafabréf frá Dominos.
5 x gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni.
2 x æfingaboltar merktir N1.
2 x Varðskipið Óðinn bók + diskur

Það var skýjað en annars ágætis veður og sólin lét jafnvel sjá sig inn á milli, þótt flestir hefðu kosið að aðeins hlýrra hefði verið.

Hér má sjá myndaseríu frá mótinu: GRAND OPEN 2011

Helstu úrslit voru eftirfarandi:

Besta skor án forgjafar:

1. sæti Helgi Runólfsson, GK, 70 högg. Helgi hlaut í verðlaun Bushnell Tour V2 fjarlægðarmæli með PinSeeker og hádegishlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski. Heildarverðmæti vinnings um kr. 55.000.

 

Punktakeppni með forgjöf:
1. sæti  Goði Már Daðason, GO, 44 punktar: Goði hlaut í verðlaun gistingu fyrir tvo eina nótt á Grand Hótel Reykjavík í tveggja manna executive herbergi með morgunverði og kvöldverði fyrir tvo í Brasserie Grand ásamt vínflösku og hádegishlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski. Heildarverðmæti vinnings um kr. 55.000.

2. sæti Hallbera Eiríksdóttir, GB, 42 punktar: Hallbera hlaut í verðlaun gistingu fyrir tvo í tveggja manna herbergi með baði og morgunverði í eina nótt á einu af Fosshótelunum og tölvuhátalara Voizze 330, með nettu bassaboxi.

3.  sæti Halldór Örvar Stefánsson, GSE, 41 punktur. Halldór Örvar hlaut í verðlaun “Sex til sýnis” fyrir tvo á Fjalakettinum og hádegishlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski.

4. sæti Lovísa Hermannsdóttir, GK, 41 punktur: Lovísa hlaut í verðlaun gjafabréf frá Vita að fjárhæð kr. 20.000 og 2 x gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni (1 hamborgari og gosdrykkur).

5. sæti Guðmundur Guðmundsson, GSE, 40 punktar. Guðmundur hlaut í verðlaun Doss Rotating Speaker System (Dock for iPod & iPhone) og 2 x gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni (1 hamborgari og gosdrykkur).

69. sæti  Pétur Andri Ólafsson, GKG, 28 punktar. Pétur Andri hlaut í verðlaun gjafabréf frá Icewear.

Nándarverðlaun:
Næst holu á 2/11: prentari Canon PIXMA iP4850 að verðmæti kr. 18.000.

Næst holu á 5/14: Gjafabréf fyrir fjölsk. (allt að 6 manns) í hvalaskoðun að verðmæti kr. 25.000.

Næst holu á 8: Steikarhlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski og 12 Titleist Nxt golfboltar.