Rory heillum horfinn – var á 79 á 1. hring Opna breska! – Svarar Faldo fullum hálsi
Rory átti erfiða byrjun á Opna breska í dag.
Hann lauk 1. hring á 8 yfir pari, 79 höggum og virðist algerlega heillum horfinn.
Á hringnum fékk hann 2 fugla, 8 pör, 6 skolla og 2 skramba. Þetta lítur meira út eins og gott skor hjá meðalskussa en nr. 2 á heimslistanum!
Margir hafa orðið til að gagnrýna aumingja Rory á þessum erfiðistímum. Johnny Miller sagði að Caroline Wozniacki hefði skemmt leik Rory – Nick Faldo sagði að Rory ætti bara að einbeita sér meira að æfingum.
Og nú í vikunni svaraði Rory, Nick Faldo fullum hálsi.
„Hvað er eiginlega málið?“ spurði Rory. „Ég hef ekki átt bestu 6 mánuði ferilsins, en það er allt í lagi. Það er allt í lagi með mig. Þannig að þetta hefir engin áhrif á mig. Ég er á góðum stað. Og eins og ég sagði ég vinn mikið. Mér finnst eins og ég sé að vinna í öllum réttu hlutnum. Og fyrr en varir mun allt snúast og ég fer að lyfta bikurum aftur.“
Það lítur ekki út fyrir að það muni gerast, a.m.k. ekki á Muirfield, á Opna breska haldi hann áfram að spila eins og hann gerði í dag.
Faldo stakk upp á s.l. mánudag að Rory „ætti að vera mættur kl. 9 í klúbbinn, slá bolta allan daginn og fara ekki fyrr en kl. 5, einbeita sér að golfi og engu öðru.“
Í gær svaraði Rory fyrir sig: „Ég var mættur á æfingasvæðið kl. 6:15 og fór úr ræktinni kl. 6:15 um kvöldið – ég átti 12 stunda vinnudag, samanborið við 8 tímanna hans (Faldo). „Nick ætti að vita hversu erfiður leikurinn er stundum. Hann hefir verið í þeirri stöðu sjálfur. Hann ætti að vita hversu mikið við allir leggjum á okkur.“
Kannski Rory sé bara að ofgera sig í öllum æfingunum? En líklega hefir Rory rétt fyrir sér, hann verður búinn að snúa við blaðinu fyrr en varir og óþarfi að vera að höggva í hann rétt fyrir risamót, eins og Nick Faldo gerði með sínum föðurlegu umvöndunum. Og Faldo, breski fánaberinn og afmæliskylfingur dagsins, var sjálfur á 79 höggum á fyrsta hring Opna breska í dag! Lítur út fyrir að hvorugur komist gegnum niðurskurð eins og staðan er núna!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024