Fannar Ingi lauk keppni í 5. sæti á US Kids!!!
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, lauk keppni í 5. sæti á US Kids Golf Teen World Championship, sem er stórglæsilegur árangur í ljósi þess að keppendur voru 130 víðs vegar að úr Bandaríkjunum og heiminum öllum (m.a. frá Englandi, Kanada, Kína, Costa Rica, Spáni, Mexíkó Litháen, Perú, Nýja-Sjálandi, Ítalíu, Dóminíkanska lýðveldinu, Panama, Suður-Afríku, Suður-Kóreu, Singapúr, Svíþjóð, Guatelmala og Ekvador ). Fannar Ingi deildi 5. sætinu með Damon Crane frá Kanada og Ryan Chadwick frá Englandi. Í 4 efstu sætunum voru keppendur frá Bandaríkjunum og í 1. sæti Kyle Cornelius, frá Alabama, sem lék á samtals 3 undir pari. Fannar Ingi var því aðeins 4 höggum frá 1. sætinu!
Leikið var á einum Pinehurst golfvallanna í National Golf Club í Norður-Karólínu, Bandaríkjunum, dagana 25.-27. júlí 2013. Sjá má glæsilegan Pinehurst völlinn sem spilað var á með því að SMELLA HÉR:
Fannar Ingi átti frábæran lokasprett; lék hringina 3 á samtals 1 yfir pari, 217 höggum (72 74 71). Á lokahringnum, sem Fannar Ingi spilaði á 1 undir pari, fékk hann 5 fugla, 9 pör og 4 skolla. Stórglæsilegt þetta og það í Pinehurst! Það er ekki annað hægt en að fyllast stolti yfir góðri frammistöðu Fannars Inga, sem á framtíðina fyrir sér í golfinu, enda aðeins 14 ára!
Til þess að sjá lokastöðuna á US Kids Golf Teen World Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024