NY Choi leiðir þegar Opna breska er hálfnað
Það er Na Yeon (stytt í NY) Choi frá Suður-Kóreu, sem leiðir þegar Opna breska kvenrisamótið er hálfnað.
NY Choi er búin að spila frábært , stöðugt golf á St. Andrews; er efst eftir 2. hringi Opna breska á samtals 10 undir pari, 134 höggum (67 67).
Landa hennar sem er að reyna við Grand Slam, Inbee Park, átti annan slæman hring í dag upp á 1 yfir pari 73 högg og er samtals búin að spila á 2 undir pari, 142 höggum (69 73). Hún þarf virkilega að töfra fram ótrúlega 2 hringi um helgina til þess að eiga séns á 4 risamóta Grand Slam-inu, en sem stendur er hún heilum 8 höggum á eftir NY Choi!
Í 2. sæti 1 höggi á eftir NY Choi er Miki Saiki frá Japan, á samtals 9 undir pari, 135 höggum (69 66).
Nýliðinn Camilla Lennarth sem leiddi eftir 1. hring ásamt Morgan Pressel frá Bandaríkjunum, virðist hafa farið á taugum á 2. hring eða a.m.k. ekki þolað álagið af að deila 1. sætinu en hún átti afleitan hring í dag upp á 10 yfir pari 82 högg og nokkuð ljóst að hún kemst ekki í gegnum niðurskurð á samtals 4 yfir pari en niðurskurðarlínan er sem stendur miðuð við samtals skor upp á 1 yfir pari.
Meðal þeirra sem líka komast ekki í gegnum niðurskurð ef framangreint verður raunin (þ.e. niðurskurður miðaður við 1 yfir par) eru Yani Tseng og Belen Mozo, en báðar eru á samtals 2 yfir pari, en sú sem rétt kemst í gegn er áhugamaðurinn ný-sjálenski Lydia Ko!!!! Glæsilegt hjá Ko en hún rétt sleppur í gegn á samtals 1 yfir pari!
Nokkrar eiga eftir að ljúka leik á 2. hring þegar þetta er ritað, en fátt sem virðist ætla að koma í veg fyrir ofangreint.
Til þess að sjá stöðuna á Opna breska þegar kvenrisamótið er hálfnað SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024