Ólöf María með ás!!!
Klúbbmeistari GHD, og tvöfaldur Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni 14 ára og yngri Ólöf María Einarsdóttir, fór holu í höggi í dag á Selsvelli þar sem hún keppir í flokki 15 ára og yngri telpna í sveitakeppni GSÍ og er eins og hennar er von og vísa að gera góða hluti.
„Ólöf María notaði 8-járn en boltinn fór hátt upp í vindinn til hægri, beygði inn á flöt og skoppaði tvisvar á flötinni áður en hún lenti í holu,“ skv. frétt á heimasíðu GF.
Fyrsta brautin á Selsvelli er um 109 metra að lengd af bláum teigum.
Skv. ofangreindri frétt segist Ólöf María ætla að gera það að fara holu í höggi að mánaðarlegum viðburði 🙂 en þetta er í 2. sinn í sumar sem Ólöf María slær draumahögg allra kylfinga, aðeins 14 ára!!! Fyrra skiptið var einmitt í s.l. mánuði á heimavellinum, þ.e. 3.braut Arnarholtsvallar á Dalvík.
Golf 1 óskar Ólöfu Maríu innilega til hamingju með ásinn!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024