Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ fer fram 5.-6. september n.k.
Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ verður haldið þann 5. og 6. september, í níunda sinn. Fyrirhugað var að mótið færi fram daganna 29. og 30. ágúst en vegna slæmrar veðurspár hefur mótinu verið frestað um viku.
Mótið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þáttökurétt með góðum árangri á Unglingamótaröð GSÍ ásamt því að Klúbbmeisturum GKJ er boðin þáttaka. Leikin verður forleikur á fimmtudeginum og síðan verður Unglingaeinvígið í Mos leikið á föstudeginum. Þar munu 10 unglinga hefja leik.
Mótið fer fram á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ og er haldið af Golfklúbbnum Kili.
Mótið er leikið eftir svokölluðu shoot out fyrirkomulagi þar sem 10 leikmenn leggja af stað og fellur einn leikmaður út á hverri holu þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Sá sem leikur hverja holu á flestum höggum fellur út en séu menn eru jafnir þá er sett upp þraut þar sem sá leikmaður sem slær lengst frá holunni dettur út.
Sigurvegarar mótsins frá upphafi eru:
2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson
Sigurvegari Unglingaeinvígisins 2012 Aron Snær Júlíusson, fær sjálfkrafa þátttökurétt í Lokaeinvíginu sem haldið verður föstudaginn 30. ágúst.
Þeir sem hafa unnið sér inn þátttökurétt í mótinu eru eftirfarandi.
14 ára og yngri
Ingvar Andri Magnússon
Arnór Snær Guðmundsson
Kristján Benedikt Sveinsson
Sigurður Arnar Garðarsson
Kristófer Karl Karlsson
Ólöf María Einarsdóttir
Hekla Sóley Arnarsdóttir
Sunna Björk Karlsdóttir
Ragnar Már Ríkarðsson
Valur Þorsteinsson
15-16 ára
Gísli Sveinbergsson
Henning Darri Þórðarson
Birgir Björn Magnússon
Óðinn Þór Ríkharðsson
Kristófer Orri Þórðarson
Ragnhildur Kristinsdóttir
Saga Traustadóttir
Birta Dís Jónsdóttir
Arna Rún Kristjánsdóttir
Björn Óskar Guðjónsson
17-18 ára
Egill Ragnar Gunnarsson
Ísak Jasonarson
Ragnar Már Garðarsson
Kristinn Reyr Sigurðsson
Benedikt Árni Harðarson
Gunnhildur Kristjánsdóttir
Særós Eva Óskarsdóttir
Helga Kristín Einarsdóttir
Daníel Andri Karlsson
Guðni Valur Guðnason
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024