Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már í 5. sæti fyrir lokahring Turning Stone Tiger Inv.
Ragnar Már Garðarson, GKG, Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki 2013, hefur feril sinn í bandaríska háskólagolfinu vel en hann deilir 5. sæti ásamt 3 öðrum eftir 2. hringi á fysta móti sínu í bandaríska háskólagolfinu, the Turning Stone Tiger Invitational, sem fram fer í Verona, New York, nánar tiltekið á Kaluhyat golfvellinum.
Kaluhyat golfvöllurinn er talinn einn af 100 bestu golfvöllum Bandaríkjanna og má sjá heimasíðu Turning Stone golfklúbbsins, þar sem völlurinn er með því að SMELLA HÉR:
Þetta er tveggja daga mót, sem fram fer 1.-2. september 2013 en fyrri daginn, í gær, voru spilaðar 36 holur.
Þátttakendur eru 75 frá 14 háskólum.
Ragnar Már lék fyrri hringinn á 4 undir pari, 68 glæsihöggum og seinni hringinn á 2 yfir pari, 74 höggum og er á samtals 2 undir pari fyrir lokahringinn sem leikinn verður í dag. Glæsilegur árangur þetta hjá Ragnari Má eftir fyrstu tvo hringi og vonandi að framhald verði á í dag!
Til þess að sjá stöðuna á Turning Stone Tiger Invitational eftir fyrstu 2 hringina SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024