Hver er kylfingurinn: Henrik Stenson?
Henrik Stenson vann í gær Tour Championship og varð við það rúmum 1,5 milljarði íslenskra króna ríkari (þ.e. ef bónuspotturinn sem hann hlaut upp á rúman 1,368 milljarð er bættur við 173 milljónirnar sem hann fékk fyrir sigurinn á Tour Championship.) En hver er þessi sænski kylfingur sem kominn var niður í 300. sætið á heimslistanum, en hefir verið að rífa sig upp og spila svona glæsilegt golf í ár?
Henrik Stenson er fæddur 5. apríl 1976 í Stokkhólmi, í Svíþjóð og er því 37 ára. Hann á sem stendur lögheimili í Dubai, í Sameinuðu Furstadæmunum. Hann er 1.85 m á hæð og 90 kg.
Hann er giftur samlöndu sinni, Emmu Löfgren, sem hann kynntist fyrir 13 árum á golfvelli í Svíþjóð. Þau eiga eina dóttur, Lisu, sem fæddist 2. júlí 2007 og er því sex ára og soninn Karl sem fæddist 2010 og er 3 ára.
Henrik varð atvinnumaður í golfi, árið 1999 og var efstur á peningalista Challenge-túrsins í Evrópu, árið á eftir, þ.e. árið 2000. Hann spilaði á Evróputúrnum 2001 og sigraði í 6 mótum á honum. Á árunum 2005 -2008 var hann meðal 10 efstu í European Order of Merit.
Henrik Stenson var meðal 20 efstu kylfinga á heimslistanum (Official World Golf Rankings) árið 2006 og meðal 10 efstu árið 2007. Í febrúar 2007 var hann í 8. sæti listans eftir sigur sinn í Dubai Desert Classic-mótinu og var þá sá Evrópubúi sem náði hæstu hæðum á heimslistanum yfir bestu kylfinga.
Vikuna eftir sigurinn í Dubai varð Henrik Stenson fyrsti Svíinn til þess að vinna World Golf Championships en hann sigraði Geoff Ogilvy 2-1 í úrslitum WGC-Accenture Match Play Championship. Með þessum sigri varð Henrik efstur á European Order of Merit og einnig í 5. sæti á lista yfir bestu kylfinga heims, sem var mesti árangur sem Svíar hafa náð á listunum; hann fór fram úr Jesper Parnevik, sem náði 7. sætinu á heimslistanum í maí 2003. Sjötta sætið sem hann er í eftir glæsisigur sinn á Deutsche Bank Championship 2013 er því ekki besti árangur hans á heimslistanum! Það er hins vegar 4. sætið sem hann situr nú í eftir sigurinn á Tour Championship 2013!!!
Þessir tveir sigrar urðu til þess að Henrik var í forystu á European Tour Order of Merit, en hann gat ekki byggt við þá sigra og hafnaði í 4. sæti.
Henrik Stenson tók í fyrsta sinn þátt í Ryder Cup árið 2006 og eftir að hafa náð hálfu stigi í fjórleik gegn Stewart Cink og David Toms fekk hann heiðurinn af því að setja niður pútt og tryggja Evrópu Ryder bikarinn 3. árið í röð eftir að sigra Vaughn Taylor 4-3 í einvígi milli þeirra. Hann tók þátt í Ryder Cup 2008, í Valhalla, og sigraði og var jafn í fjórleiknum. En hvernig sem á því stóð var hann ekki eins heppinn og tveimur árum áður, en hann tapaði einvígi sínu við Kenny Perry.
Frægt er þegar kynnirinn las nafn Henriks Stenson vitlaust upp í Ryder Cup árið 2008. Fyrst var Henrik Stenson nefndur Henrik Stevenson og svo Henrik Stevens. Mistökin voru að sjálfsögðu leiðrétt.
Í mars 2009 olli Henrik Stenson fjölmiðlafárviðri þegar hann strippaði og var að lokum aðeins í nærbuxum og golfhanska einum fata; þegar hann þurfti að ná bolta úr leirpytti í fyrstu umferð WGC-CA Championship. Þetta tilvik leiddi m.a. til þess að Tiger Woods, sem annars er alltaf svo alvarlegur á golfvellinum gaf Henrik Stenson nýjar brækur eins og frægt varð.
Þann 10. maí 2009 vann Henrik Stenson The Players Championship, en hann lauk keppni á 66 höggum á lokahringum, 4 höggum á undan Ian Poulter. Þetta var fyrsti sigur hans í höggleik í Bandaríkjunum. Sigurinn færði hann aftur í 5. sæti heimslistans yfir bestu kylfinga. Næstu viku varð hann færður upp í 4. sæti án þess að spila.
Stenson vann vafalaust einn stærsta sigur sinn 2. september 2013 þegar hann vann Deutsche Bank Championship í FedExCup umspilinu en þar hlaut hann sigurtékka upp á 173 milljónir íslenskra króna. Var hann vel að sigrinum kominn en hann var búinn að vera í 2. og 3. sæti í stórmótum golfsins allt árið 2013… þannig að það hlaut að koma að þessu!
En hann bætti um betur, í gær 23. september 2013 þegar hann vann langstærsta sigur sinn til þessa í 4. og síðasta móti FedEx Cup umspilsins, Tour Championship, í East Lake, Georgíu og varð fyrir vikið $1,440,000 (aftur u.þ.b. 173 milljónir íslenskra króna) ríkari, sem hann hlaut vegna sigursins í mótinu, en auk þess fékk hann rúman 1,3 milljarða bónuspott fyrir að vera efstur á FedExCup stigalistanum, fyrstur Evrópubúa.
Alls hefur Henrik Stenson sigrað á 15 mótum, þar af í 4 skipti á PGA-mótaröðinni, 7 sinnum á Evróputúrnum, í 3 skipti á Challenge-túrnum. Besti hans í risamótunum 4 er 2. sætið á Opna breska, (2013) og eins varð hann í 3. sæti á PGA Championship í ár (2013). Síðan varð hann jafn öðrum í 9. sæti (T-9) á Opna bandaríska. Besti árangur hans á the Masters er enn T-17 árangur árin 2007 og 2008.
Eins og er spilar Henrik Stenson bæði á PGA-mótaröðinni og á Evróputúrnum og er nú í 4. sæti listans yfir bestu kylfinga heims.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024