Birgir á samtals 2 undir pari eftir 2. hring
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG lauk 2. hring á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu í Pléneuf, Frakklandi, á 3 yfir pari, 73 höggum og er því samtals á 2 undir pari, 138 höggum (65 73).
Birgir Leifur byrjaði á 1. teig í morgun, eftir að hafa lokið við 6 holur sem hann átti eftir af 1. hring eldsnemma í morgun.
Birgir Leifur spilaði því í raun 24 holur í dag.
Á 2. hring fékk hann skolla á 4. holu sem hann tók aftur á 8. holu með fugli en fékk síðan aftur skolla á 9. holu. Fyrri 9 spiluðust því á 36 höggum.
Síðan fékk Birgir Leifur slæman skramba á 10. holu sem hann náði að hluta strax aftur á 11. holu með fugli og öðrum fugli á 13. holu, en fékk síðan slæman þrefaldan skolla (7 högg) á par-4 14. holuna, sem hann átti líka í vandræðum með í gær. Hann rétt náði að laga þann slæma skolla með 1 fugli á 15. holu og 3 yfir pari niðurstaða dagsins, sem hlýtur að vera svolítið svekkelsi eftir glæsibyrjunina!
En Birgir Leifur er floginn í gegnum niðurskurð og bara spurning hvað hann gerir á morgun og hinn því hann spilar svo sannarlega um helgina!
Til þess að sjá stöðuna á Open Blue Green Côtes d’Armor Bretagne mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024