Gísli í 1. sæti!!!! – U18 lið Íslands í 3. sæti!!!
Íslenska piltalandsliðið í golfi er í þriðja sæti á samtals 15 höggum yfir pari eftir annan hringinn af þremur í undankeppni Evópumóts pilta 18 ára og yngri, en sætinu deilir liðið með liði Portúgal. Lið Belgíu er í efsta sæti á samtals 8 yfir pari og lið Wales í 2. sæti á samtals 10 yfir pari.
Fimm bestu skorin telja eftir hvern hring þannig að okkar strákar eru sannarlega með í báráttunni, þrjár þjóðir af ellefu komast áfram á Evrópumótið sem fram fer í Noregi að ári. Allt lítur því vel út hjá strákunum okkar í augnablikinu!!!
Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili átti frábæran hring í dag upp á 3 undir pari, 69 högg. Á hringnum fékk hann 6 fugla og 3 skolla, þ.á.m. fékk Gísli 3 fugla í röð á 14.-16. holu!!! Glæsilegt hjá Gísla!!!!
Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis er í 2. sæti sem hann deilir með Spencer Charlie White frá Wales!!! Báðir hafa leikið á samtals 2 undir pari, Fannar Ingi (72 70); og Spencer Charlie (71 71). Flott hjá Fannari Inga!!!
Sætistala og skor strákanna okkar:
1. sæti Gísli Sveinbergsson, GK, (72 69)
2. sæti Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, (72 70)
22. sæti Aron Snær Júlíusson, GKG, (73 75 )
28. sæti Ragnar Emil Gunnarsson, GKG, (78 73) Fór upp um heil 8 sæti!!!! – Frábær árangur!!!
52. sæti Henning Darri Þórðarson, GK (83 75) Fór upp um heil 8 sæti!!!! – Frábær árangur!!!
52. sæti Birgir Björn Magnússon, GK (79 79)
Hér er hægt að sjá skor keppenda með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024