Rory tilbúinn fyrir mótin í Shanghai
Eftir að hafa landað 2. sætinu á Kolon Korea Open nú á sunnudaginn, þá eru vonir Rory McIlory miklar um gott gengi í næstu tveimur mótum sem hann tekur þátt í, í Shanghai, í Kína.
BMW Championship fer fram nú í vikunni og heimsmótin WGC-HSBC Championships fara fram í lok mánaðarins.
„Ég geri miklar kröfur til mín á þessum tveimur mótum,“sagði Norður-Írinn í golfbúðum við golfklúbbinn Lake Malaren í Shanghai, í gær. „Svo lengi sem ég ræð við pútt vandamál mín þá ætti ég að geta unnið á öðru hvoru þeirra.“
McIlroy sagði að hann hefði orðið fyrir miklum vonbrigðum með pútt sín á Korea Open, þar sem hann tapaði bara með 1 höggi.
„Púttin eru það eina sem ég þarf að vinna í, ég þarf að athuga betur hraða flatanna og vinna í því. En burtséð frá því er ég ánægður með sjálfan mig varðandi sveifluna og allan leik minn áður en komið er á flöt.“
McIlroy átti frábært ár 2012 þar sem hann vann tvö risamót og varð nr. 1 á heimslistanum aðeins 23 ára.
En síðan þá hefir allt verið á niðurleið; hann skipti um golfútbúnað (NIKE) og með nýju kylfunum hefir hann ekki gert neitt annað en að renna niður heimslistann úr 1. sæti í 6. sæti. Ofan á allt saman á hann í málaferlum með fyrrum umboðsmannskrifstofu sína auk þess sem sögusagnir hafa farið á kreik að hann og kæresta hans, Caroline Wozniacki, séu skilin að skiptum, þó bæði hafi ekki tjáð sig mikið um það.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024