LPGA: Nordqvist, Phatlum og Ryu leiða í hálfleik í Mexíkó
Sænska Solheim Cup stjarnan Anna Nordqvist og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu fengu báðar fugl á lokaholuna á 2. hring Lorena Ochoa Invitational á afmælisdegi gestgjafans (Lorenu Ochoa) í gær, 15. nóvember 2013 og komust þar með upp við hlið Pornanong Phatlum frá Thaílandi, sem var forystukona 1. dags á mótinu.
Nordqvist og Ryu voru á 5 undir pari, 67 höggum og eru þar með orðnar jafnar Phatlum, en allar eru þær búnar að spila á 9-undir pari, 135 höggum í Guadalajara Country Club.
Nordqvist og Ryu voru í sama ráshóp.
„Mér finnst alltaf gaman að spila við Önnu,“ sagði Anna. „Við skemmtum okkur svo vel alltaf, ég elska það. Við spiluðum svo vel, sérstaklega á seinni 9. Við slógum vel og hún virtist setja öll fugla pútt niður. Ég var mjög spennt að sjá hana og sjá hvernig hún spilar.“
Nordqvist hefir ekki sigrað síðan í LPGA Tour Championship árið 2009.
„Við erum bara komnar í hálfleik og augljóslega eru bestu (kven-) kylfingar heims hér þannig að það er ekkert hægt að fara að hugsa um sigur eða að leiða í mótinu í augnablikinu,“ sagði Nordqvist. „Við eigum eftir að spila í tvo daga í viðbót, þannig að maður verður bara að leika golfið sitt og reyna að vera á lágu skori.“
Phatlum, sem eins og segir leiddi eftir 1. dag var á 69 höggum annan daginn.
„Ég er mjög ánægð með skorið mitt, en púttin voru ekki góð. Ég missti nokkur stutt pútt.“
Í 4. sæti eru nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park frá Suður-Kóreu, en hún deilir því sæti með bandarísku kylfingunum Lexi Thompson og Gerinu Piller. Thompson var á besta skori dagsins 64 höggum, Piller var á 65 höggum og Park á 68.
Hin 18 ára Lexi, sem sigraði á LPGA Malaysia í síðasta mánuði, sagði eftir hringinn góða: „Ég fór bara út í dag óhrædd og hélt mig við (mína túlkun á) (pútt)línunum. Ég setti niður fleiri pútt í dag og það hjálpar alltaf til (upp á gott skor).“
Inbee Park, sem vann fyrstu 3 risamót ársins hefir ekki sigrað í 8 mótum allt frá því hún sigraði í U.S. Women’s Open seint í júní.
Nr. 2 á Rolex-heimslistanum Suzann Pettersen og nr. 3 Stacy Lewis eru T-9 á samtals 6 undir pari. Pettersen lék 2. hringinn á 68 höggum og Lewis var á 66 höggum.
Michelle Wie var á 73 höggum á 2. hring og er nú T-20, á samtals 2 undir pari.
Sú sem á titil að verja Cristie Kerr er í 27. sæti á samtals 2 yfir pari, 144 höggum en hún fylgdi eftir slæmum hring upp á 77 högg eftir með hring upp á 67 högg.
Til þess að sjá stöðuna í heild eftir 2. hring Lorena Ochoa Invitational SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024