Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ s.l. 3 ár með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og nú í ár 2013.
Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf.
Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 31 árs; Hlyns Heiðars, 31 árs; Söndru Rós, 18 ára og Sigrúnar Ásu 14 ára. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Hlyn Viðar 5 ára og Henrik Viðar 4 ára, Jóhannes Viðar 7 ára og Steinunni Lilju 5 ára.
Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Steinunni með því að SMELLA HÉR:
Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:
Steinunn Sæmundsdóttir · 53 ára (Innilega til hamingju með afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Dick Rhyan, 28. nóvember 1934 (79 ára); David Ecob, 28. nóvember 1965 (48 ára); Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, 28. nóvember 1968 (45 ára); Evan Droop, 28. nóvember 1970 (43 ára); Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (spilar á Sólskinstúrnum, 39 ára) og Angela Stanford f. 28. nóvember 1977 (36 ára); Sveinn Orri Snæland, GR, 28. nóvember 1981 (32 ára) …. og …..
Atli Þór Þorvaldsson (51 árs)
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024