Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Patrik Sjöland (12/27)
Í dag verður byrjað á því að kynna þá 5 stráka, sem urðu í 12.-16. sæti í Q-school Evrópumótarðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013.
Þetta voru þeir Patrik Sjöland, Brinson Paolini, Jens Dantrop, Simon Wakefield og James Heath.
Byrjað verður á því að kynna þann sem varð í 16. sæti – Patrik Sjöland, sem var einn af 3 Svíum sem komust í gegnum Q-school að þessu sinni. Af þeim 27 „strákum“ sem komust í gegnum Q-school var Patrik jafnframt elstur eða 42 ára, en hann er fæddur í Borås í Svíþjóð, 13. maí 1971. Patrik hefir farið í Q-school Evrópumótaraðarinnar 10 sinnum frá því að hann gerðist atvinnumaður 1990.
Sjöland spilaði fyrst um sinn á Áskorendamótaröðinni og komst ekki á Evrópumótaröðina fyrr en 1996. Eitt besta ár hans á túrnum var árið 1998 þegar hann varð nr. 5 á peningalista Evrópumótaraðarinnar og var meðal efstu 50 á heimslistanum. Eftir slæmt ár 2005 missti hann kortið sitt og spilaði aðeins í 2 mótum 2006. Hann kom sér hins vegar aftur á túrinn eftir að hafa farið í Q-school í árslok 2006. Hann hélt því samt ekki og varð aftur að fara í Q-school 2007 þar sem hann nældi sér í kortið góða aftur, m.a. með glæsierni sem hann náði með 7-járns höggi. Sagan endurtók sig samt aftur 2008 en hann komst þá ekki í gegnum Q-school og hafði takmarkaðan spilarétt 2009.
Sjöland hefir á ferli sínum sigrað tvívegis á Evróputúrnum, European Tour, þ.e. 3. maí 1998 á Italian Open og síðan aftur 2. júní 2000 á Irish Open. Sjöland hefir sigrað í nokkrum alþjóðlegum mótum m.a. árið 1999 þegar hann sigraði á Hong Kong Open.
Alls hefir hann sigrað í 7 mótum sem atvinnumaður á ferli sínum og besti árangur hans í risamóti er T-18 árangur í Opna breska. Það er því varla hægt að tala um Sjöland sem „nýjan“ strák á Evróputúrnum, nýr ekki nema í þeim skilningi að hann er einn af þeim sem fékk kortið sitt fyrir 2014 keppnistímabilið!
Patrik Sjöland á synina Hugo (f. 2000) og Ludvig (2003) og býr í Gislaved í Svíþjóð. Áhugamál hans utan golfsins eru hokkí, skíði, lestur góðra bóka, tónlist og reyndar allar íþróttir. Heima í Svíþjóð er hann í Isaberg GK.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024