GÖ: Guðmundur endurkjörinn formaður – 2,9 milljóna hagnaður
Aðalfundur GÖ var haldinn í Skipholti 70 þriðjudaginn 10. desember 2013. Nýendurkjörinn formaður Guðmundur E. Hallsteinsson sendi frá sér eftirfarandi fundargerð:
„Í stjórn voru kosnir:
Formaður Guðmundur E. Hallsteinsson, aðrir stjórnarmenn eru Knútur Kristinsson, Guðjón Snæbjörnsson, Guðlaug Þorgeirsdóttir og Ragnar Guðmundsson.
Varastjórn:
Þórir Björgvinsson og Hannes Björnsson.
Endurskoðendur:
Stefán Gunnarsson og Þröstur Eggertsson.
Árgjöld klúbbsins voru ákveðin og verða árið 2014:
Einstaklingar kr. 56.500, hjónagjald kr.85.000, unglingar greiða kr. 18.000, námsmenn í fullu námi kr. 28.250,
öldungar og öryrkjar greiða hálft gjald.
Rekstur golfklúbbsins gekk vel þrátt fyrir votviðrasamt golfsumar. Hagnaður af rekstrinum var kr. 2.916.758.
Þess skal getið að golfklúbburinn verður 40 ára á næsta ári. Þeirra tímamóta verður fagnað með ýmsum hætti. Á afmælisárinu verða tvær nýjar flatir teknar í notkun, á 1. braut og 9.braut.
Ef einhver hefur ekki eignast klúbbpeysu eða bol er það tilvalin jólagjöf. Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Stjórn golfklúbbsins óskar golfklúbbsfélögum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.
Fyrir hönd stjórnar, Guðm.E.Hallsteinsson.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024