Valdís Þóra á 74 höggum 1. daginn á lokaúrtökumótinu
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, lék 1. hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LET, eða Evrópumótaröð kvenna í dag.
Það leit ekki vel út eftir fyrstu 9 holurnar en þá var Valdís Þóra á 3 yfir pari, eftir 10. holu var hún jafnvel á 4 yfir pari, en hún sýndi karakter á síðustu 8 holunum, hélt jöfnu og náði fuglum á 2 síðustu lokaholunum.
Niðurstaðan var sú að Valdís Þóra lék á 2 yfir pari, 74 höggum fyrsta hringinn. Hún deilir sem stendur 50. sæti ásamt 9 öðrum m.a. Bonitu Bredenhann, sem komst í gegnum Q-school í fyrra og var sú fyrsta til þess að spila á Evrópumótaröð kvenna f.h. Namibíu – Sjá kynningu Golf 1 á Bredenhann með því að SMELLA HÉR:
Aðrar sem deila 50. sæti með Valdísi Þóru eru Carmen Alonso, Krista Bakker, Isabell Gabsa, Charlotte Thompson, Isabelle Boineau, Christine Wolf, Charlotte Ellis og Lucie Andre (en má kynningu Golf 1 á þeim með því að smella á nöfn þeirra sem eru undirstrikaðar).
Efstu 60 fá að spila lokahringinn og sem stendur kemst Valdís Þóra rétt svo áfram og enn eftir að spila 3 hringi og vonandi að hún verði öruggari áfram, því flestar stúlknanna fara að spila betur eftir því sem þekkingin á vellinum eykst og margar eins og Bonita, Charlotte og Lucie ekki að spila völlinn í 1. sinn.
Í 1. sæti eftir 1. dag er sænski kylfingurinn Rebecca Sörensen, en hún lék á 6 undir pari, 66 höggum.
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Lalla Aicha Final Qualifying SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024