Nýju strákarnir á Evróputúrnum: Connor Arendell (20/27)
Í dag verður fram haldið að kynna þá 4 stráka, sem deildu 8.-11. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013.
Þetta voru þeir James Morrison, Stuart Manley, Wade Ormsby og Connor Arendell, en af þeim hafa allir nema Connor Arendell þegar verið kynntir.
Allir léku þeir á samtals 12 undir pari, 416 höggum og hlutu € 4.085 í verðlaunafé.
Í dag verður Connor Arendell kynntur en hann varð í 8. sæti í Q-school, lék á (72 70 71 65 70 68).
Connor Arendell var í hóp Bandaríkjamanna sem voru næstfjölmennastir strákanna 27 sem komust á Evrópumótaröðina eða 4, næstir á eftir enskum kylingum sem voru fjölmennastir eða 5.
Connor Arendell var líka einn af aðeins 6 kylfingum sem spilaði á öllum 3 stigum úrtökumótsins og vann sér þar með svo sannarlega fyrir kortinu sínu.
Connor Arendell fæddist og ólst upp í Cape Coral, Flórída 30. mars 1990 og er því 23 ára. Hann á því sama afmælisdag og Ágúst Húbertsson, þ.e. „Gústi“ fyrrum framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis.
Hann byrjaði ungur að spila golf vegna þess að vinir hans voru allir í golfi og hann gat ekki verið með þeim nema að læra golf. Hann hafði mun meiri áhuga á hafnarbolta, bandarískum ruðningsbolta og knattspyrnu en hæfileikar hans á golfvellinum voru fljótir að koma í ljós.
Hann m.a. komst í háskóla á golfskólastyrk í University of Central Florida, þar sem hann var 4 ár í bandaríska háskólagolfinu. Arendell átti glæsilegan áhugamannsferil; komst m.a. 5 sinnum í US Amateur Championships.
Í dag býr Connor í Orlando, Flórída og er í Grand Pines golfklúbbnum. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2011.
Hann hefir einu sinni áður reynt fyrir sér í Q-school þ.e. 2012 en þetta er í fyrsta skipti sem hann kemst á Evróputúrinn.
Meðal áhugamála hans eru kappakstrar og að vera með vinum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024