Kylfingurinn Gylfi Þór íþróttamaður ársins 2013
Kylfingurinn Gylfi Þór Sigurðsson var kjörinn íþróttamaður ársins 2013 í gærkvöldi með viðhöfn af Samtökum Íþróttafréttamanna…. að vísu fyrir afrek á sviði knattspyrnu, en Gylfi Þór leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham Hotspurs.
Gylfi er fæddur 8. september 1989 og því 24 ára.
Hlaut Gylfi Þór 446 stig af 500, en 25 af 26 félögum SÍ nýtti sér atkvæðisrétt sinn. Í 2. sæti varð Aníta Hinriksdóttir, frjálsum íþróttum, með 288 stig og Guðjón Valur Sigurðsson, handbolta, varð í 3. sæti með 236 stig.
Tveir kylfingar voru meðal tilnefndra Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, sem hlaut 15 stig (13.-14. sæti af 23) og Valdís Þóra Jónsdóttir, sem hlaut 2 stig (22. sæti af 23).
Þetta var í 58. sinn sem kjörið fór fram, en s.l. 11 ár hafa fót-og handbolti skiptst á um að eiga íþróttamann ársins, en kylfingur hefir aldrei hlotið heiðurstitilinn „íþróttamaður ársins“ allt frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 1956, nema þegar menn eru vel að sér á tveimur vígstöðvum líkt og Gylfi Þór sem m.a. sigraði í opnu golfmóti í Öndverðarnesi 2012, sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Annars eru golf og veiðar aðaláhugmál íþróttamanns ársins 2013 utan knattspyrnunnar.
Þess mætti og geta að Gylfi Þór er bróðir núverandi klúbbmeistara GR, Ólafs Más Sigurðssonar.
Aðrir sem hlutu viðurkenningar af hálfu SÍ voru karlalandsliðið í knattspyrnu, sem valið var lið ársins 2013 og Alfreð Gíslason sem valinn var þjálfari ársins 2013.
Stig SÍ skiptust annars með eftirfarandi hætti:
1 Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna – 446 stig
2. Aníta Hinriksdóttir, frjálsar íþróttir– 288 stig
3. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 236 stig
4. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti – 206 stig
5. Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrna – 189 stig
6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna – 134 stig
7. Alfreð Finnbogason, knattspyrna – 73 stig
8. Helgi Sveinsson, íþróttir fatlaðra – 62 stig
9. Auðunn Jónsson, kraftlyftingar – 41 stig
10. Aron Pálmarsson, handbolti – 32 stig
11. Jóhann Rúnar Skúlason, hestaíþróttir – 23 stig
12. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund – 16 stig
13. Norma Dögg Róbertsdóttir, fimleikar – 15 stig
14. Birgir Leifur Hafþórsson, golf – 15 stig
15. Guðbjörg Gunnarsdóttir, knattspyrna – 14 stig
16. Guðmundur Sverrisson, frjálsar íþróttir– 11 stig
17. Helena Sverrisdóttir, körfubolti – 7 stig
18. Dominiqua Alma Belanyi, fimleikar – 4 stig
19. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund – 4 stig
20. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna – 3 stig
21. Þóra Björg Helgadóttir, knattspyrna – 3 stig
22. Valdís Þóra Jónsdóttir, golf – 2 stig
23. Þórir Ólafsson, handbolti – 1 stig
Lið ársins:
1. A-landslið karla, knattspyrna – 125 stig
2. A-landslið kvenna, knattspyrna – 55 stig
3. Kvennalið Gerplu, hópfimleikar – 20 stig
Þjálfari ársins:
1. Alfreð Gíslason, handbolti – 54 stig
2. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, knattspyrna – 34 stig
3. Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsar – 33 stig
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024