NÝTT!!! Fréttir frá Champions Tour og EST
Það er mikið ánægjuefni að tilkynna nýjustu viðbót við fréttaefni Golf 1 á nýja árinu 2014 – en það er umfjöllun frá mótum bandarísku Champions Tour þ.e. öldungamótaröð PGA.
Þrír efstu á peningalistanum 2013 á Champions Tour voru þeir Kenny Perry, Bernhard Langer og Fred Couples og verður sérlega gaman að fylgjast með þeim köppum og öðrum stórkylfingum, á næstu mánuðum, m.a. mönnum á borð við Sir Nick Faldo.
Næsta mót á Champions Tour fer fram í Hawaii, en það er Mitsubishi Electric Championship á Hualalai golfvellinum í Ka’upulehu-Kona, þ.e. 17. janúar n.k.
Jafnframt verður Golf 1 með umfjöllun um European Seniors Tour (skammst. EST), sem er hliðstæða Champions Tour. Á þeirri mótaröð leika m.a. kappar á borð við Colin Montgomerie, Bernhard Gallacher og Sandy Lyle.
Golf 1 mun ekki aðeins vera með úrslitafréttir heldur leitast eftir megni að vera með kynningar á köppunum á Champions og European Seniors túrnunum, með svipuðum hætti og er með aðra kylfinga á öðrum mótaröðum; þ.e. í greinaflokknum: Hver er kylfingurinn?
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024