Inbee Park, Kenny Perry og Adam Scott valin kylfingar ársins af GWAA
Samband golffréttaritara í Bandaríkjunum (GWAA) tilkynnti að Adam Scott hefði verið valinn kylfingur ársins 2013. Scott sigraði í 4 mótum á árinu þ.á.m. the Masters risamótinu, fyrstur Ástrala.
Kosningin var naum því Tiger Woods vantaði bara 5 atkvæði til þess að ná titilinum af Scott. GWAA leit sérstaklega til sigra Scott seint á árinu, en fyrir utan að sigra á the Masters og the Barclays þá vann Scott tvívegis í Ástralíu og sigraði auk þess heimsbikarinn ásamt Jason Day.
Í kvennaflokki var kosningin ekki nándar nærri eins spennandi – eiginlega sigraði Inbee Park með rússneskri kosningu 91% atkvæða og var vel að titlinum komin. Hún vann 6 sinnum í ár á LPGA Tour þ.á.m. þvívegis á risamótum.
Þannig vann Inbee fyrstu 3 risamót ársins í kvennagolfinu: Kraft Nabisco í mars; LPGA Championship og síðan U.S. Women’s Open í júní. Henni mistókst að sigra í 4. risamótinu þar sem hún var undir smásjá heimsgolfpressunar og lauk keppni þar T-42, en engu að síður varð hún efst á peningalista LPGA og var valin leikmaður ársins á LPGA.
Þetta var því sögulegt ár fyrir hina 25 ára Inbee frá Suður-Kóreu. Aðeins Bobby Jones, Ben Hogan, Babe Zaharias og Tiger Woods hafa sigrað 3 risamótstitla í röð á sama ári.
Inbee hefir samtals sigrað í 9 LPGA mótum og er nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna.
Kenny Perry var útnefndur kylfingur ársins í öldungaflokki af GWAA. Hann vann 2 risamót, the Senior Players Championship í júní og U.S. Senior Open í júlí á the Champions Tour árið 2013.
Perry átti í erfiðleikum með að klára risamótin meðan hann var enn á PGA Tour, þannig varð hann í 2. sæti á PGA Championship 1996 og í 2. sæti á the Masters 2009.
Masters 2009 var einkum sársaukafullt fyrir Perry þar sem hann var með skolla bæði á 17. og 18. holunum á lokahringnum og tapaði þannig.
En nú er Perry að blómstra á Champions Tour. Hann vann þannig einnig AT&T Championship á Champions Tour í október og Charles Schwab Cup.
Perry er 53 ára og hefir alltaf verið seinn til að springa út – en 11 af 14 titlum á PGA Tour komu eftir 40 ára afmælisdaginn!!!
Þessir ofantöldu 3 kylfingar ásamt bestu golffréttariturum ársins 2013 munu hljóta viðurkenningar í GWAA Awards Dinner miðvikudaginn 9. apríl n.k. í Augusta, Georgia.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024