Suzann Pettersen íþróttakona Noregs!
Norska frænka okkar, nr. 2 á Rolex-heimslistanum yfir bestu kvenkylfinga heims, Suzann Pettersen, var valin íþróttakona ársins (nor: Årets kvinnelige idrettsutøver) í Noregi í gær á hinni árlegu „Idrettsgalla“ m.ö.o. íþróttahátíð Norðmanna.
Jafnframt var hún valin Íþróttamaður ársins í Noregi, hlaut m.ö.o. Utøvernes pris á norsku, ásamt skákmanninum Magnúsi Carlsen.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Pettersen er valin íþróttakona Noregs en hún hlaut titilinn m.a. árið 2009. Sjá með því að SMELLA HÉR: og með því að SMELLA HÉR:
Hins vegar mun þetta vera í fyrsta sinn sem kylfingur hlýtur Íþróttamannstitilinn (þ.e. Utøvernes pris) en þeim titli deildi Suzann, sem segir, með Magnúsi Carlsen, sem klárlega var sigurvegari kvöldsins með 4 verðlaun. Hann vann það einstæða afrek 2013 að sigra heimsmeistarann í skák, Indverjann Viswanathan Anand.
Suzann, sem Norðmenn nefna gjarnan Tutta sagði m.a.: „Þúsund hjartans þakkir“ þegar hún sté á sviðið og tók á móti verðlaununum.
Tutta er fædd 9. apríl 1981 og er því 32 ára. Hún þakkaði m.a. foreldrum sínum, golfsambandinu norska og norsku þjóðinni árangur sinn í þakkarræðunni. „Mest af öllum vil ég þakka þjóðinni,“ sagði Suzann. „Ég vona til þess að þetta stuðli að því að fleiri byrji í golfi,“ sagði Suzannn Pettersen m.a.
Á árinu vann Suzann m.a. Evian Masters, sem í fyrsta sinn var spilað sem risamót í ár, þ.e. er 5. risamótið í kvennagolfinu og auk þess 3 önnur mót á LPGA, auk þess sem hún var lykilkona í sigurliði Solheim Cup og lengi vel í baráttunni um 1. sætið á heimslistanum, en því stefnir hún að því að ná af Inbee Park, nú í ár, 2014.
Sjá má alla vinningshafa frá íþróttahátið Norðmanna 2014 með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024