Heimslistinn: Johnson í 7. sæti!
Zach Johnson er kominn í 7. sæti heimslistans eftir frækilegan og verðskuldaðann sigur á TOC þ.e. Tournament of Champions á Kapalua í Hawaii.
Það var hrein unun að fylgjast með lokahring Zach á sunnudaginn, þar sem hann lék á glæsilegum 7 undir pari, 66 höggum og gaf hvergi eftir.
Þannig missti hann hvergi högg, var með 7 glæsifugla og fékk m.a. 3 fugla í röð á 14.-16. braut og virtist fátt geta stoppað hann.
Zach var fyrir mótið í 9. sæti heimslistans en á topp-10 fór hann úr 13. sætinu eftir frækinn sigur á World Challenge móti Tiger Woods nú fyrir jól.
Annað merkilegt á heimslistanum er að engin breyting er meðal 6 efstu á heimslistanum (Tiger er í 1. sæti; Adam Scott í 2. sæti; Henrik Stenson í því þriðja; Justin Rose í 4. sætinu; Phil Mickelson í 5. sætinu og síðan Rory McIlroy í 6. sætinu).
Í sjöunda sætið er síðan kominn Zach Johnson, sem veldur því að Matt Kuchar fer niður um 1 sæti í 8. sætið og Steve Stricker úr 8. sætinu niður í 9. sætið. Í 10. sæti stendur Sergio Garcia í stað.
Annað markvert á topp-50 listans er að allir þátttakendur TOC, sem voru meðal efstu manna hækka sig á listanum: Þann fer Jason Dufner úr 15. sætinu í 13. sætið; Jordan Spieth fer úr 22. sætinu í 17. sætið; Webb Simpson úr 21. sætinu í 22. sætið og Kevin Streelman tekur mesta stökkið; fer úr 44. sætinu upp í 34. sætið!
Sjá má heimslistann í heild sinni með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024