Viðtalið: Birgir Björn Magnússon, GK
Viðtalið í kvöld er við einn alefnilegasta kylfing Íslandinga, 16 ára klúbbmeistara Golfklúbbsins Keilis 2013, sem á ferli sínum í golfi hefir unnið mörg afrek á golfsviðinu. Þannig hefir Birgir Björn bæði orðið. Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokkum og eins Íslandsmeistari með sveitum GK í sveitakeppni GSÍ. Nú síðast hlaut Birgir Björn háttvísibikar GSÍ, sem var afhentur á aðalfundi GK, 9. desember 2013 og er þá fátt eitt talið.
Hér fer viðtalið:
Fullt nafn: Birgir Björn Magnússon.
Klúbbur: GK.
Hvenær og hvar fæddistu? 12. maí 1997, í Reykjavík.
Hvar ertu alinn upp? Í Hafnarfirði – ég hef alltaf búið í Hafnarfirði.
Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er í Flensborgarskóla á 2. önn – á málabraut og íþróttaafrekssviði í golfi.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á mömmu, pabba, bróður og hálfbróður sem býr í Svíþjóð. Pabbi er golfkennari og mamma er með golfnetverslunina Hissa.is. Foreldrar mínir spila báðir golf, Pétur, bróðir minn spilar af og til en Sindri er eiginlega ekkert í golfi.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég hef náttúrlega alltaf verið í golfi að þvælast í kringum golfvöllinn. Þegar ég var 10 ára fannst mér gaman að Tiger Woods 07 tölvuleik í Playstation og þá byrjaði ég að mæta á æfingar hjá Golfklúbbnum Oddi – fékk delluna og hef verið á fullu síðan.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Stóri bróðir minn fór með pabba í sveitakeppni og var aðstoðarliðsstjóri. Svo þegar hann kom tilbaka var hann með golfæði og það smitaði mig svolítíð.
Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Strandvelli – út af því að ég kann vel við harðar og hraðar flatir og vind og líka út af því að ég er alinn upp á Hvaleyrinni – þótt það sé ekkert ýktur strandvöllur.
Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Mér finnst skemmtilegra að spila holukeppni . Það er öðruvísi – þar næ ég að spila sem best og hugsa bara um að koma þessu höggi sem næst- sama hvar það er.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Hvaleyrin og Urriðavöllur.
Hefir þú spilað alla velli á Íslandi? Nei, ætli ég hafi ekki spilað svona 20-25 velli (af 65).
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? Það er Montecastillo, hann er mjög ofarlega og síðan El Saler.
Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Vierumäki Classic í Finnlandi- Það var fyrsti almennilegi skógarvöllur sem ég hef komið á og það var mjög skrítið að spila hann. Þetta var allt annað en ég er vanur.
Hvað ertu með í forgjöf? 1,2.
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Það er 64 högg á Grafarholtsvelli af rauðum teigum í Íslandsmótinu í höggleik 2011, en af öftustu eru það 70 högg á Hvaleyrarvelli.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Að verða klúbbmeistari Keilis 2013.
Hefir þú farið holu í höggi? Já, tvisvar – (Innskot: Í fyrra skipti fór Birgir Björn holu í höggi 12 ára, á 6. holu Hvaleyrarvallar, þann 2. júní 2009 og seinna skiptið 17. maí 2012 fór Birgir Björn holu í höggi á 8. holu Garðavallar á Akranesi. Sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: )
Spilar þú vetrargolf? Ég spila ekki úti, mér finnst leiðinlegt að spila í köldu og vondu veðri, en ég er duglegur að pútta og chippa inni en fer aðeins stundum út.
Hvaða nesti ertu með í pokanum? Það er yfirleitt samloka með einhverjum afgöngum úr ísskápnum.
Tekur þú þátt í öðrum íþróttum? Já, ég spila körfubolta með Haukum .
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn; uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbók? Uppáhaldsmaturinn minn er: humar uppáhaldsdrykkurinn er: Malt og appelsín; uppáhaldstónlistin er: melódískt rokk – get hlustað á nánast allt; uppáhaldskvikmynd: The Prestige; Uppáhaldsbók: Pet Cemetery eftir Steven King
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kvk: Inbee Park Kk: Keegan Bradley.
Hvert er draumahollið? Ég og….Keegan Bradley, Tiger Woods og Greg Norman.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Ég er með Clevland Classic dræver – nýrri týpuna – Adams Golf Super line 3-tré 14,5°; 3-PW Miura Professional Blade, Cleveland 51°, 55° og 60° wedga og svo er ég með See More Orginal Gun Metal pútter. Uppáhaldskylfan er pútterinn. Ég er byrjaður að pútta svo vel – það var alltaf kylfan sem sveik mig, en svo breyttist það.
Hefir þú verið hjá golfkennara? Já hjá pabba og síðan hef ég verið hjá Bjögga og Auðunni Einars; Bjögga og Siggapalla, Siggapalla og Jóa og núna hjá Bjögga.
Ertu hjátrúarfullur? Þegar mér gengur illa þá er ég mjög hjátrúarfullur – þá fer ég að trúa á allskonar hluti.
Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Í golfinu er það að spila á atvinnumótaröð í Evrópu eða PGA og í lifínu: að hafa það sem skemmtilegast til lengri tíma.
Hvað finnst þér best við golfið? Það er allt gott við það. Mér finnst bara gaman í golfi.
Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? 50%
Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Já, að æfa.
Svona að lokum skulum við líta aðeins yfir liðið sumar:
Hvað er eftirminnilegast af golfvellinum hjá þér á s.l. ári (2013)?: Það var einvígið við Birgi Leif. Það var mesta upplifunin; það var kannski ekki besta spilamennskan eða árangurinn – en það er næst því sem ég hef komið atvinnumannstilfinningunni – drauminum.
Hver fannst þér standa sig best á Eimskipsmótaröðinni? Rúnar Arnórsson, GK, varð náttúrulega stigameistari ætli hann hafi ekki staðið sig best.
Hver fannst þér standa sig best á Íslandsbankamótaröðinni? Aron Snær Júlíusson, GKG.
Hver eru markmiðin hjá þér fyrir næsta sumar? Ég ætla að reyna að vinna meira en á síðasta ári – ég hef oft og eiginlega alltaf verið í topp-3, en þarf að leggja meiri áherslu á að vinna.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024