GÁS: Sigurjón endurkjörinn formaður – félagsgjald kr. 7.400,-
Aðalfundur golfklúbbs Ásatúns,var haldinn laugardaginn 18. janúar 2014 í Golfskálanum Snússu, Ásatúni.
Sigurjón Harðarson var endurkjörinn formaður, ásamt allri fráfarandi stjórn.
Fjármál Golfklúbbsins eru í góðu jafnvægi, en rekstur vallarins er með talsverðum undirballance. Er það von þeirra í GÁS að veðrið verði hagstæðara við GÁS og aðra landsmenn í sumar, þannig að hægt verði að snúa þessu við.
Ákveðið var á aðalfundi að börn yngri en 14 ára fái að spila frítt, séu þau í fylgd fullorðina.
Félagsgjald án vallargjalda verður 7.400 kr fyrir árið 2014 og verður einn 9 holu hringur innifalinn á Ásatúnsvelli.
Toppmótið er sett á 2. ágúst.þ.e. laugardaginn, Verslunarmannahelgina. Einnig verður Jónsmessumót og eitt punktamót til viðbótar.
(Innskot: Þetta er með lægstu félagsgjöldum ef ekki lægsta félagsgjald af öllum golfklúbbum á Íslandi – og frábært að gerast félagi í Golfklúbbi Ásatúns, ætli viðkomandi kylfingur sér t.a.m. aðeins að taka þátt í nokkrum mótum á árinu en félagsgjöld fyrir 4 manna fjölskyldu hér á höfðuðborgarsvæðinu er hátt á 300.000,- í sumum klúbbum og fælir marga frá golfíþróttinni. Sigurjón og félagar í GÁS bjóða mönnum upp á þennan frábæra valkost – fyrir utan að það er að frábært að vera félagi í GÁS og eins og margoft hefir verið minnst á hér á Golf 1 ætti Ásatúnsvöllur að vera skylduspil fyrir kylfinga, en hann er með skemmtilegri 9 holu völlum landsins.)
Komast má á glæsilega heimasíðu Golfklúbbs Ásatúns með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024