Tiger viðurkennir að vera í sms sambandi við Rachel Uchitel
Sumar fréttir af Tiger eru svo skrítnar að það er spurning hvern trúnað eigi að leggja í þær þessa dagana.
Ein fréttin af mörgum gengur út á að hann sé orðinn þreyttur á kærustu sinni Lindsey Vonn. Lesa má fréttina með því að SMELLA HÉR:
Í annarri frétt segir að Tiger hafi nýlega verið í Crystal City, Texas, sem sé þekkt sem spínat höfuðborg heimsins.
Tiger var sagður hafa fjárfest í 18 förmum af spínati, sem Tiger segir að sé meðal uppáhaldsrétta sinna.
Tiger á að hafa sagt nýlega að hann borði spínat daglega og brosandi að „Stjáni sterki“ hafi vitað nákvæmlega hvað hann var að gera, þegar hann át spínat til að fá styrk.
Þegar Tiger var í Crystal City var Tiger spurður að því hvort hann myndi taka upp samband við fyrrum hjákonu sína, Rachel Uchitel, sem er nýskilin.
Tiger á að hafa roðnað og sagt að það væri satt hann hefði verið í sms sambandi við Uchitel.
Hann á að hafa sagt að Uchitel væri töfrandi og tælandi og líklega einhver sú besta sem hann hefði verið með. Hann sagði að vel gæti farið að hann myndi kvænast Uchitel.
Þess skal getið í lokin að fréttin er á mjög óáreiðanlegum fréttamiðli, sem nefnist „The Spoof!“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024