GO: Púttmótaröð GO-kvenna hefst í Kauptúni kl. 18:00 á morgun fimmtudaginn 6. febrúar!
Púttmótaröð GO-kvenna hefst á morgun í Kauptúni kl. 18:00 og barst eftirfarandi fréttatilkynning frá kvennanefnd GO:
„Kæru GO konur!!!
Gleðilegt ár og takk fyrir frábært golfár sem var að líða !
Nú er komið að innanhúss púttmótaröðinni 2014.
Spilaðar verða 6 umferðir í Kauptúni, Garðabæ, innanhússæfingasvæði Odds, sem er gegnt IKEA.
Nýi púttvöllurinn er nú rétt í þessu að verða tilbúinn og er enn betri en í fyrra, eitthvað hefur hann þó minnkað en strákarnir í Kauptúni lofa skemmtilegum velli.
Því er ekki eftir neinu að bíða….og við byrjum strax í þessari viku og spilum fram að konukvöldi GO….en dagsetningin er ekki alveg komin á hreint…en við sendum upplýsingar um það fljótlega
3 bestu skor gilda.
Í ár verður fyrsta mótið haldið á fimmtudaginn 6. febrúar og frá kl. 18.00-19,30.
Við höfum ca. 1,5 klukkustund til umráða og því er mikilvægt að mæta til leiks á réttum tíma. Munið eftir að taka með ykkur golfkúlu, blýant og að sjálfsögðu pútterinn!!
Þá viljum við endilega biðja ykkur að koma skilaboðum til GO kvenna að láta skrá sig á póstlista kvennastarfsins á gudmundina@logvik.is
Við hvetjum ykkur allar til að taka þátt, enda er þetta kjörin vettvangur til að kynnast öðrum konum í klúbbnum.
Þátttökugjald er kr. 500 í hvert skipti…………………..Munið að koma með reiðufé !
Gaman að setjast niður og spjalla saman eftir púttmótið og efla félagsanda innan klúbbsins!!
Vonumst til að sjá sem flestar ykkar á púttkvöldum, hressar og kátar…………..og alls ekki gleyma keppnisskapinu !!
Hér að neðan eru helstu golfreglur sem gilda á púttmótaröðinni“
Kvennanefndin
Helstu reglur í púttmótum Odds í Kauptúni
· Spilaðar eru 18 holur í hvert skipti. Ef tími gefst til er leyfilegt er að taka tvo 18 holu hringi og telur betri hringurinn í keppninni.
· Allir sem taka þátt í mótinu verða að hafa meðspilara og skráir hvor þeirra skor hins leikmanns eins og venja er í golfleik.
· Leikmaður og ritari þurfa að kvitta fyrir skráðu skori áður en skilað er inn til umsjónarmanns.
· Skorkortið verður að vera fyllt út skilmerkilega með nafni og kennitölu leikmanns.
· Í byrjun hverrar brautar verður að stilla bolta upp við hliðina á teigmerki.
· Klára verður hverja holu til að fá skor.
· Eitt högg er í víti ef bolti snertir vegg.
· Færa má bolta frá vegg þar til viðunandi staða er fengin, en þó ekki nær holu.
· Ef tveir eða fleiri eru jafnir gilda seinni níu. Ef enn er jafnt, þá gilda seinustu sex, síðan seinustu þrjár. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024