Anna Rún Sigurrósardóttir látin
Kylfingurinn Anna Rún Sigurrósardóttir lést 1. febrúar s.l. á gjörgæsludeild Landspítalans.
Anna Rún var fædd 28. nóvember 1968. Hún var félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og skólasystir þeirrar er þetta ritar í Menntaskólanum í Reykjavík.
Anna Rún var yfirleitt í verðlaunasæti á opnum golfmótum. Hún vann t.d. til nándarverðlauna á 8. braut á Opna Helenu Rubinstein mótinu uppi á Skaga 9. júlí 2011; var aðeins 0,67 m frá pinna og var t.d. í 7. sæti á Art Deco mótinu á Vatnsleysunni, 6. ágúst sama ár (af 86 þátttakendum).
Þegar Eimskip og GSÍ stóðu fyrir Gott Golf mótinu til stuðnings Krafts, 2010, þar sem einungis þeir fengu að taka þátt í mótinu á Flúðum, sem söfnuðu mestum áheitum – þá flaug Anna Rún inn í mótið, en hún sigraði með miklum yfirburðum í áheitakeppninni, sem efnt var til. Hún sagði að móti loknu að hún hefði aðeins óskað þess að geta safnað enn meiru!
Anna Rún var góð ekki bara í golfi heldur líka að öllu öðru leyti. Hún var lágforgjafarkylfingur og það er fréttaritara Golf 1 minnisstætt að Önnu Rún fannst engin minnkun í því að spila við sig, háforgjafarkylfinginn án þess að vera of mikið að segja til eða finna að neinu. Anna Rún var reglulega góður og skemmtilegur spilafélagi og hennar verður sárt saknað.
Golf 1 vottar fjölskyldu og vinum Önnu Rún sína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Önnu Rún.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024