Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 09:45

GKG: Úrvalshópur GKG hitti Charlotte Sörenstam í æfingaferð í Orlando

Valinn hópur fremstu kylfinga í GKG er  þessa dagana í æfingaferð í Orlando í Flórída.

Skilyrði fyrir þátttöku í þessari ferð var að vera hluti af Afrekshópi GSÍ og hafa náð menntaskólaaldri.

Kylfingarnir eru að æfa og leika við frábærar aðstæður á Orlando svæðinu, og stendur æfingaferðin yfir í rúma viku.

Á æfingu í fyrradag (16. febrúar 2014)  hittu þau Charlotte Sörenstam, sem rekur golfskóla á Reunion Resort, en hún er systir einnar af goðsögnum golfsins, Anniku Sörenstam.

Á meðfylgjandi mynd af úrvalshópnum vantar Ragnar Má Garðarsson, sem þurfti að yfirgefa hópinn og halda til golfliðs háskóla síns, McNeese, sem er við keppni í Texas.   Á forsíðumyndinni eru frá vinstri:  Emil Þór Ragnarsson, Aron Snær Júlíusson, Alfreð Brynjar Kristinsson, Egill Ragnar Gunnarsson, Særós Eva Óskarsdóttir, Charlotte Sörenstam, Gunnhildur Kristjánsdóttir, Kristófer Orri Þórðarson, Þórður Már Jóhannesson fararstjóri. Myndina tók Derrick Moore, afreksþjálfari GKG.