Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2014 | 12:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Rebecca Sörensen (19/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Það voru 5 stúlkur sem deildu 10. sætinu (voru jafnar í 10.-14. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 undir pari, 358 högg: Ariane Provot,  Kim Williams, Henni Zuel,  Rebecca Sörensen og Tessa Teachman.

Sú sem verður kynnt í kvöld er sænski kylfingurinn Rebecca Sörensen, sem varð í 13 .sætinu á eins og segir 358 höggum (66 74 73 71 74).

Rebecca fæddist 6. maí 1986 í Grabo, Svíþjóð. Hún komst í gegnum Lalla Aicha Tour School 2012 og þá var Golf 1 með eftirfarandi kynningu á Sörensen sem enn er í góðu gildi SMELLIÐ HÉR: