Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 12:00

Hvað skal gera í eldingu á golfvöllum?

Í gær birti Golf 1 mynd af 2. flötinni á Narooma golfvellinum í Ástralíu en þar hafði eldingu lostið niður.

Hér á Íslandi erum við svo heppin að þrumur og eldingar eru sárasjaldgæfar og því meginpartur íslenskra kylfinga því e.tv. ekki með það á hreinu hvað gera skuli þegar vart verður þruma og eldinga á golfvelli.

Það fer yfirleitt ekki milli mála þegar von er á þrumum og eldingum – það dimmir skyndilega og fer að rigna eins og hellt væri úr fötu.  Yfirleitt heyrist fyrsta þruman í einhverri fjarlægð OG ÞÁ BER KYLFINGUM AÐ YFIRGEFA GOLFVÖLLINN OG LEITA SKJÓLS HELST Í KLÚBBHÚSI, SEM YFIRLEITT ER MEÐ ELDINGAVARA.

Alls ekki á að halda áfram með hringinn, sama þó viðkomandi hafi farið holu í höggi fyrr á hringnum og lítið er eftir eða verið er að spila hring ævinnar!

Á öllum helstu mótaröðunum heims er leik hætt vegna „dangerous situation“ þ.e. hættulegs ástands á golfvellinum og viðvörunarkerfi fer í gang á vellinum þ.e. viðvörunarhringing sem segir öllum kylfingum að stöðva eigi leik. Honum má síðan fram halda í samráði við klúbbinn, þegar þrumum og eldingum lýkur.

En hvað ef þrumurnar koma ykkur í opna skjöldu? – Þið eruð á miðjum velli langt frá klúbbhúsi?  Ekki fara í golfbíl, ekki fara í lítil óvarin hús og ekki leita skjóls undir háum stökum trjám.  Skiljið allt eftir og reynið að mjaka ykkur í átt að klúbbhúsinu.   Það er jafnvel betra að beygja sig niður á opnu svæði á miðri braut ef eldingin er rétt hjá ykkur heldur en að standa undir háu tré því eldingar leita alltaf í hæstu punktana.

Hér eru nokkur ráð um hvað gera skuli á golfvelli í eldingu, tekin saman af sambandi bandarískra golfvallarstarfsmanna (ens. : the Golf Course Superintendents Association of America):

1.  Leitið skjóls. Um leið og þruma og eldinga verður vart komið ykkur í klúbbhúsið. Hættið leik og leitið skjóls í þrumuveðri um leið og viðvörunarkefi fer í gang.

2. Ef mögulegt reynið að komast af golfvellinum í eldingarvarið hús (opnar byggingar veita enga vernd fyrir eldingum jafnvel þó þær séu með eldingarvara – þannig að halda verður þeim lokuðum.

3. Standið ekki undir tré. Það er þar sem flest fólk meiðist eða deyr þegar eldingu lýstur niður.

4. Haldið ykkur frá öllu vatni/m.a. vatnshindrunum.

5. Haldið ykkur frá golfkylfunum ykkar / það má sækja þær seinna.

6. Ef þið eruð með járntakka undir golfskónum, farið úr þeim eða fjarlægið takkana.

7. Ekki fara í golfbíla.

8. Ef þið eruð á opnu svæði – leitið skjóls í lægsta punkti t.a.m. gjá eða dal. (Ef þið finnið fyrir kitlandi tilfinningu og hárin á höndum ykkar standa upp, beygið hnén húkið niður og reynið að gera umfang ykkar sem minnst, með hendur fyrir framan hnén. Ef þið eruð í hóp passið að hafa u.þ.b. 5 metra á milli ykkar – minni hætta á að elding hitti allan hópinn þá).

Hér má til gamans rifja upp eldingaratriðið í golfkvikmyndinni Caddyshack, sem er víti til varnaðar SMELLIÐ HÉR: