Frá Selsvelli á Flúðum einum uppáhaldsgolfvalla Jóhannesar á Íslandi.
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 07:00

GF: Góugleði 22. mars n.k.!

Laugardaginn 22. mars n.k. verður Góugleði GF haldin í golfskálanum. Þema kvöldsins er svart-hvítt.  Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00. Kaffi-Sel galdrar fram ljúffengar veitingar og á matseðlinum er eftirfarandi:

Purusteik – Kjúklingaréttur ættaður frá Spáni – Hrísgrjón – Kartöflugratín – Ferskt salat – Gular baunir – Smjörsteiktir Flúðasveppir – Heimabakað brauð – Eftirrétturinn er marengs terta að hætti hússins!

Karl Hallgrímsson tónlistarmaður sér um undirleik við borðhald og um dansfjörið er líða tekur á kvöldið! Skemmtiatriðin verða heimatilbúin þar sem góðlátlegt grín verður gert að golfurum, því maður er manns gaman. Þema kvöldsins er „Svart og Hvítt“ sem á að endurspeglast í klæðnaði gesta og veitt verða verðlaun fyrir bestu útfærsluna.

Verð er aðeins 4.900 kr./mann. Gjaldgengir í Góugleðina eru félagar í GF og gestir þeirra.

Til að staðfesta þátttöku þarf að millifæra upphæðina inn á reikning Kaffi-Sels, 0152-26-3397 – kt. 470404-2720 og senda nöfn þátttakenda á netfangið gf@kaffisel.is eða hafa samband við Kaffi-Sel í síma 661-5935 (Unnsteinn) eða 846-9321 (Halldóra). Staðfesta þarf þátttöku eigi síðar en þriðjudaginn 18. mars.

Stjórn GF hvetur félaga og gesti þeirra til að fjölmenna á skemmtunina sem markar upphaf golfvorsins!