Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín lauk keppni í 17. sæti á Louisiana Classic

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“, golflið Louisiana Lafayette, luku leik i gær á 29. árlegu móti Louisiana Classic.

Mótið fór fram í Oakborne Country Club í Lafayette, Louisiana og voru þátttakendur  72 frá 12 háskólum.

Mótið stóð dagana 10.-11. mars 2014.

Haraldur Franklín lék á samtals 2 yfir pari (70 76 72) og lauk keppni í 17. sæti  í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni var Haraldur Franklín á 2. besta skori liðsins og taldi það því í  3. sætis árangri The Raging Cajuns!

Til þess að sjá lokastöðuna á Louisiana Classic SMELLIÐ HÉR: