Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 19:35

GK: Aron Atli sigraði á 1. sunnudagspúttmóti FJ og Hraunkots – var á 23 púttum!!! – Myndasería

Sunnudaginn 17. mars var haldið fyrsta púttmótið af fjórum sem verða haldin í samvinnu Hraunkots við FootJoy. Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu sex sætin og einnig aukaverðlaun fyrir 20. sæti. 50 manns komu í Hraunkot á sunnudaginn og tóku þátt í fyrsta mótinu. Keppendur púttuðu 2 hringi og taldi betri hringurinn. Mótið byrjaði kl 13:00;  stóð til 18:00 og tókst vel.

Hér má sjá litla myndseríu úr mótinu SMELLIÐ HÉR:

Úrslit urðu eftirfarandi:

1. sæti Aron Atli Bergmann 23 pútt (12-11)  Glæsilegur!!!
2. sæti Sigurður Ó Sumarliðasson 26 pútt (13-13)
3. sæti Ragnar Pétur Hannesson 27 pútt (15-12)
4. sæti Atli Már Grétarsson 27 pútt (14-13)
5. sæti Benedikt Árni Harðarsson 27 pútt (12-15)
6. sæti Þór Breki Davíðsson 28 pútt (16-12)

Aukaverðlaun fyrir 20. sæti hlaut svo Jakob Richter.

Vinningshafar geta vitjað vinninga í afgreiðslu Hraunkots. FootJoy

Næsta mót verður 23. mars n.k.  Allir velkomnir!