Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 21:54

PGA: Bubba með ofnæmi – dró sig úr mótinu á Bay Hill eftir hring upp á 83 högg!

Bubba Watson dró sig úr Arnold Palmer Invitational presented by MasterCard, í dag, 1. mótsdag og bar fyrir sig ofnæmi.

Hann var með hring upp á 83 högg þ.á.m. með 11 högg á einni holu. Þetta er hæsta skor hans á PGA Tour frá árinu 2008, á 2. hring á Memorial Tournament.

Bubba var með fugl, 3 skolla og þrefaldan skolla og bætti síðan við fimmföldum skolla á par-5 6. holunni.

Bubba er ein af sleggjum PGA Tour og ótrúlegt að hann skuli hafa verið með 11 högg á par-5u!

Bubba hefir engu að síður gengið vel að undanförnu þannig varð hann í 2. sæti á World Golf Championships-Cadillac Championship fyrir tveimur vikum og vann í síðasta mánuði á  Northern Trust Open.  En ekki gott að vera með ofnæmi að spila.

Honum hefir nefnilega yfirleitt gengið vel á Bay Hill. Þannig varð hann meðal 15 efstu á síðastu tveimur árum þ.á.m. T-4 árið 2012.