Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 08:45

Frægðarhöll kylfinga breytir um valferli

Frægðarhöll kylfinga (ens.: World Golf Hall of Fame) hefir gert breytingar á valferli sínu, þ.e. hverjir velja kylfingana, sem hljóta þennan eftirsótta heiður.

Hér áður fyrr voru það fjölmörg hundruð manna sem komu að vali á næsta frægðarhallarkylfingnum m.a. fjölmiðlamenn, forvígismenn innan golfsins og félagar, sem þegar höfðu hlotið inngöngu í frægðarhöllina. Þeir ákváðu hverjir til viðbótar hlytu inngöngu.

Valnefndin nú er skipuð: 3 golffréttamönnum, 4 félögum sem þegar hafa hlotið inngöngu í frægðarhöllina og 9 stjórnendum í golfheiminum (ens. golf administrators), alls 16 mönnum.  Til þess að komast í frægðarhöllina verður kylfingur að hljóta 75% atkvæða nefndarinnar eða hljóta atkvæði 12 af þessum 16 nefndarmanna.  (Í fyrra komust Fred Couples og Colin Montgomerie inn í frægðarhöllina, með minna en 50% atkvæða að baki sér og nú var ákveðið að herða inngönguskilyrðin).

Jafnframt hefir verið aflagt að menn hljóti inngöngu einvörðungu vegna sigra á PGA Tour annars vegar og á alþjóðvísu hins vegar.  Nú hljóta menn inngöngu í 4 flokkum: karlkylfingar, kvenkylfingar, verðlaun fyrir þann sem viðloðandi hefir verið golfíþróttina í langan tíma (ens. veteran) og sérstök verðlaun fyrir ævistarf (ens. life time achievement).  Eins eru skilyrðin nú að kylfingar verði að hafa sigrað í 15 mótum á stóru mótaröðunum (skilryrðið var aðeins um sigra í 10 mótum  hér áður fyrr) eða tvívegis á risamóti til þess að geta hlotið inngöngu.

Óbreytt eru skilyrðin um að kylfingur, sem hljóta vill inngöngu í frægðarhöllina verður að vera orðinn 40 ára og verður að hafa hætt keppnisgolfi í 5 ár.  Þetta þýðir t.a.m. að Lorena Ochoa getur í fyrsta lagi hlotið inngöngu 2017, haldi hún sig áfram frá keppnisgolfi.

Næst verður vígsluathöfn í frægðarhöll kylfinga í maí 2015, en enn ein breytinganna er að nú verða aðeins teknir nýir félagar í frægðarhöllina á 2 ára fresti (var hér áður fyrr árlega)  Enginn var verður fyrir valinu nú í ár, en velja á næst nýja kylfinga í frægðarhöllina í maí 2015.

Í fyrra, 2013, hlutu eftirfarandi inngöngu í frægðarhöll kylfinga: Fred Couples, Colin Montgomerie, Willie Park Jr.,  Ken Schofield  og Ken Venturi.