Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 13:23

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá á 2. besta skori Fresno e. 2. dag í Hawaii

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK  og „The Bulldogs“ golflið Fresno State hófu í gær keppni á Anuenue Spring Break Classic mótinu í Kapalua, Maui á Hawaii. Spilað er á Bay golfvellinum.

Mótið stendur dagana 24.-26. mars 2014 og verður lokahringurinn því leikinn í kvöld. Þátttakendur eru 88 frá 15 háskólum.

Guðrún Brá fór úr 12. sætinu niður í 32. sætið í einstaklingskeppninni í gær eftir hring upp á 7 yfir pari, 79 högg.  Samtals er Guðrún Brá búin að spila 9 yfir pari,  153 höggum (74 79).

Guðrún Brá er á 2. besta skorinu í liði sínu, en lið Fresno State er í 9. sæti í mótinu.

Í dag fer Guðrún Brá út af 10. teig kl. 7:45 að staðartíma á Kapalua þ.e. kl. 17:45 hér heima á Íslandi.

Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brár SMELLIÐ HÉR: