Berglind Björnsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GR 2013. Mynd: UNCG
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2014 | 04:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og Berglind hefja leik á Bryan National Collegiate í dag

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest og klúbbmeistari kvenna í GR 2013, Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG, hefja leik í dag á Bryan National Collegiate mótinu.

Mótið fer fram á Bryan Park Champions golfvellinum í Browns Summit, Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 96 frá 19 háskólum.

Berglind fer út af 1. teig en Ólafía Þórunn af 12. teig – en um shot gun start er að ræða í mótinu þ.e. allir keppendur ræstir út á sama tíma þ.e. kl. 8:45 að staðartíma (kl. 12:45 að okkar tíma hér heima á Íslandi).

Til þess að fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar og Berglindar SMELLIÐ HÉR: