Elin Nordegren ásamt Charlie og Sam
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 08:00

$20 milljóna glæsihýsi Elínar Nordegren næstum til

Elín Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger Woods hlaut $100 milljónir þegar hún og Tiger skildu fyrir 4 árum, en lögskilnaðurinn gekk í gegn 23. ágúst 2010.

Hún hefir nú varið 1/5 hluta af þeirri upphæð í að gera upp hús sitt á North-Palm Beach í Flórída og hefir verið að vinna í því s.l. 3 ár. M.a. réðist Elín í endurbætur og gerð á húsinu þar sem það uppfyllti ekki staðla í Flórída, sem öll hús verða að uppfylla um að vera örugg í hvirfilbyljum.  En nú er allt að koma saman og verða til.

Þar hefir hún skapað sér og börnum sínum og Tiger, Sam og Charlie öruggari, draumatilveru.

Glæsihýsi Elínar Nordegren

Glæsihýsið er málað hvítt að utan og er með svörtum gluggahlerum.  Það er 9 herbergja með 8 baðherbergjum, heimabíói, vínkjallara, Koi tjörn, spa og líkamsræktarsal.

 Í garðinum er „frumskógar“ leikvöllur fyrir krakkana.

Auk þess fylgir eigninni gestahús og stór sundlaug.  Á eigninni eru jafnframt  falleg pálmatré og gert er ráð fyrir því, sem eflaust á eftir að verða með tímanum gullfallegur garður.