Klúbbhúsið á Costa Ballena, en golfvellir CB eru uppáhaldsvellir Hennings Darra erlendis. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 09:00

Golfvellir á Spáni: Costa Ballena í Andaluciu

Costa Ballena er einn völlurinn þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram á – hann er t.a.m. sá völlur sem Birgir Leifur okkar Hafsteinsson, valdi að spila á 2. – 5. desember 2011; en þá er keppt samtímis á 4 völlum Spánar; hinir eru Las Colinas í Alicante, El Valle í Murcia og La Manga í Cartagena.

Þess mætti geta að stór hópur afrekskylfinga úr Golfklúbbnum Keili er nú við æfingar undir styrkri stjórn Björgvins Sigurbergssonar, á Costa Ballena.

Spánarfarar úr Keili

Spánarfarar úr Keili – verða á Costa Ballena dagana 28. mars – 6. apríl 2014

Staðurinn er í uppáhaldi hjá stórum hópi íslenskra kylfinga sem fara þangað ár eftir ár.  Íslenskir kylfingar búsettir erlendis nota m.a. tækifærið til að hitta landa sína á Ballena og spila við þá golf!

Costa Ballena Ocean Golf Club er við Atlantshafsströnd Cadiz. Í mestu nálægð eru sögulegir bæir á borð við  Rota, Sanlucar de Barremeda, Jerez de la Frontera, Cadiz, El Puerto de Santa Maria og Sevilla.

Keppnisgolfvöllur Costa Ballena er 27 holu, hannaður af Jose Maria Olazabal og tekinn í notkun 1995 en opnaður fyrir almenning 1997. Costa Ballena hefir löngum verið æfingastöð landsliða ýmissa þjóða í golfi yfir vetrartímann, þ.á.m. þess íslenska. Margir Íslendingar hafa líka stigið sín fyrstu spor á hinum skemmtilega 9 holu par-3 velli Costa Ballena undir styrkri leiðsögn Magnúsar Birgissonar, Ragnhildar Sigurðardóttur og Harðar Hinriks Arnarsonar o.fl. golfkennara hin síðari ár.

Sjá má heimasíðu Costa Ballena með því að smella hér: COSTA BALLENA OCEAN GOLF CLUB

Golf 1 var á Costa Ballena 4. maí fyrir 3 árum og af því tilefni voru teknar nokkrar myndir af Costa Ballena golfvellinum og nokkrum Íslendingum sem voru í golfferðalagi og við störf sem golfkennarar á þessum yndislega stað:

MYNDASERÍA AF COSTA BALLENA KEPPNISVELLINUM  4. MAÍ 2011